Fara í efni

Það sem aldrei ætti að segja við fólk sem er að skilja

Gráum skilnuðum fer fjölgandi í hinum vestræna heimi.
Það sem aldrei ætti að segja við fólk sem er að skilja

Gráum skilnuðum fer fjölgandi í hinum vestræna heimi. Undanfarinn aldarfjórðung hefur fjöldi þeirra sem skilja og orðnir eru 50 ára og eldri tvöfaldast í Bandaríkjunum. Talan hefur þrefaldast fyrir þá sem eru orðnir 65 ára og eldri.

Við vitum ekki hvernig staðan er hér á landi því Hagstofan hefur ekki birt nýjar tölur um skilnaði frá því árið 2011. Skilnaðir eru oftast sárir ekki aðeins fyrir hjónin sem hafa ákveðið að ganga hvort sína leið, þeir taka á fyrir alla fjölskylduna og vinina. Það er ekki óalgengt að vinahópar tvístrist þegar hjón í hópnum skilja.

Fólk veit oft ekki hvað það á að segja við þann sem er skilin eða er að skilja. Þrátt fyrir það langar fólk að gera eitthvað og láta þann sem á um sárt að binda finna að vinátta hans skipti máli. Það er hins vegar ekki sama hvað sagt er. Hér eru nokkrar setningar sem ætti að forðast að segja við þann sem stendur í skilnaði. „Ég held að þú sért að gera mistök,“ er eitthvað sem aldrei ætti að segja. Spyrjið frekar hvað hafi orðið þess valdandi að viðkomandi tók þessa ákvörðun, eða hvað hafi valdið skilnaðinum. Reynið síðan að setja ykkur í hans eða hennar spor og hlusta á hvað hann eða hún hefur að segja. Það felst ákveðinn áfellisdómur í því að segja fólki að það sé að gera mistök.

„Þú ert betur komin án hans eða hennar. Hann eða hún hefur aldrei átt þig skilið. Hann eða hún er skíthæll,“ eru dæmi um önnur slæm ummæli. Segðu frekar: Þú hlýtur að vera reið og sár. Í því felst enginn dómur um einn eða neinn og þeim sem þú ert að tala við finnst eins og þú sýnir smá skilning á ástandinu. Ef hjónin taka saman aftur þá þarftu heldur ekki að skammast þín fyrir það sem þú sagðir þegar þú fréttir af yfirvofandi skilnaði.

Ekki segja: „Þú hefur hegðað þér svo undarlega síðan hann eða hún fór frá þér.“  Það er betra að segja viðkomandi hafi upplifað svo margt nýtt upp á síðkastið. Spyrjið: Hvað er það skemmtilegasta sem hefur komið fyrir þig. Nýskilið fólk prófar allskonar nýja hluti. Það er að reyna að koma skikki á sitt nýja líf. Gefið fólki tíma til að aðlagast breyttum aðstæðum.

 „Eigum við að fara á uppáhaldsveitingastaðinn okkar um helgina?“ Það ætti að hugsa sig vel um áður en spurning af þessu tagi er borin fram. Það getur kallað fram sárar minningar hjá þeim sem er að skilja. Spurðu frekar hvað er það sem þig hefur alltaf langað að gera en . . . LESA MERA