Fara í efni

12 hlutir sem allir ættu að gera meira af

Þú veist eflaust núna þá hluti sem að fylla lífið af heilbrigðri hamingju og gleði. (og ég er viss um að það er ekki poki af kartöfluflögum, lesa tölvupósta eða sitja og slúðra).
Verðugt er að eyða tíma í sjálfan sig stundum
Verðugt er að eyða tíma í sjálfan sig stundum

Þú veist eflaust núna þá hluti sem að fylla lífið af heilbrigðri hamingju og gleði. (og ég er viss um að það er ekki poki af kartöfluflögum, lesa tölvupósta eða sitja og slúðra).

En við þurfum öll á smá áminningu að halda reglulega. Og góðu fréttirnar eru þær að þú þarft ekki að gera þessa hluti fimm sinnum á dag né á hverjum degi til að sjá töluverða breytingu í þínu lífi. Nokkrum sinnum í viku eða í fimm mínútur á dag geta t.d breytt miklu. Það er loforð!

Og með þetta í huga að þá eru hér 12 hlutir sem við ættum öll að gera meira af.

-         Aftengjast netinu og símanum.

Slökkvum á símum, sérstaklega á kvöldmatartíma. Komið á reglu “engir símar við matarborðið”. Við þurfum ekki stöðugt að vera að skrásetja líf okkar fyrir hina félagslegu fjölmiðla.

-         Eyðið tíma með hvort öðru.

Að virkilega eyða tíma með hvort öðru er eina leiðin til að tengjast. Það er voða gaman að taka Skype og spjalla við ömmu eða aðra ættingja um helgar, en það er ekki það saman og að standa inn í eldhúsi með henni og elda og baka. Ákveðið í sameiningu að skapa meiri tíma fyrir mannleg “face to face” samskipti með fólkinu sem þú elskar.

-         Settu þig í fyrsta sæti.

Margir eiga það til að láta egóið og feita bankareikninga taka ákvarðinir fyrir sig. Þessi hugsun: Ef við förum ekki í þessa veislu að þá bjóða þau okkur örugglega ekki næst. Ef við segjum nei við þennan viðskiptavin þá gætum við misst hans viðskipti. Ef við pöntum ekki drykki og forrétti þá halda þau að við séum leiðinleg og blönk.

Tilfinningaleg og líkamleg velferð okkar endar oft í götunni. Taktu þér frí þegar þú átt inni daga til þess, drekktu vatn, borðaðu salat og segðu nei við því sem þér finnst vera rangt.

-         Hringdu í fjölskyldumeðlimi bara til að segja hæ.

Mamma þín mun elska að fá að heyra frá þér og einnig systir þín. Hringdu! Ekki geyma símtöl og hringja bara ef það er eitthvað sem er að eða þig vantar.

-         Lestu alvöru bók, ekki bara þessar sem eru á tölvutækuformi.

Það er svo notalegt að leggjast með góða bók upp í rúm eða sófa. Prufaðu að lykta af blaðsíðunum. Bækur eru fjársjóður af orðum sem þú getur haft í vasanum. Eyddu meiri tíma með bókum.

-         Hugsaðu áður en þú svarar.

Þar sem við erum endalaust að svara sms-um, tölvupóstum og fleiru að þá er vaninn orðinn svo mikill að svara þessu öllu á innan við 5 mínútum frá því það berst. Oft er betra að taka smá tíma í að svara sumum póstum og skilaboðum. Spáðu í því.

-         Hlæðu daglega, hlæðu meira.

Fjögurra ára barn hlær um 300 sinnum á dag, manneskja á fertugsaldri hlær um það bil fjórum sinnum. Sorglegt ekki satt? Hvernig er hægt að byrja að fylla á hláturskvótann? Það er einfalt, umkringdu þig fólki sem hefur góðan húmor og er hresst og skemmtilegt, lærðu brandara eða tvo eða kíktu á YouTube og finndu eitthvað fyndið þar til að horfa á.

-         Prufaðu að skrifa með penna eða blýant.

Prufaðu að skrifa bréf til fjölskyldunnar ef hún býr langt í burtu. Þú gætir einnig skrifað ástarbréf til elskhugans, eiginmannsins eða kærastans/kærustunnar.

-         Farðu að sofa klukkutíma fyrr en vanalega.

Þegar við erum vel hvíld komum við meiru í verk og tökum skynsamlegri ákvarðanir. Tölvupóstarnir munu vera þarna þegar þú vaknar og líka Netflix. Slökktu á tölvu og sjónvarpi og sofnaðu í þögn og algjöru myrkri. Þannig hleður líkaminn sig betur.

-         Finndu tíma til að gera EKKERT.

Já, þó þú þurfir að skrifa það í dagbókina þína að þá skaltu taka frá dag fyrir þig til að gera ekkert. Á degi sem þessum er tilvalið að fara í göngutúr, knúsa gæludýrið, fara í langt og slakandi bað nú eða bara liggja á sófanum og slaka á. Þetta er nauðsynlegt til að hlaða batteríin.

-         Dressaðu þig upp í þitt fínasta púss.

Ég veit að leggings sem buxur eru afar þæginlegar. En, stundum þá þarf að hafa sig til og fá að skína. Farðu í þitt fínasta púss, settu á þig rautt naglalakk og varalit. Það þarf ekkert tilefni að vera, þú ert bara að þessu fyrir sjálfa þig. Eða þegar þú ert tilbúin, hringdu þá í vinkonur, systur eða frænkur og styngdu upp á kaffihúsi.

- Ráfaðu um án GPS, án ákveðins áfangastaðar og án tilgangs.

Farðu í göngutúr um hverfið þitt. Ef þú átt hund leyfðu honum að ráða ferðinni einstöku sinnum. Það er aldrei að vita hvern þú gætir hitt eða hvað þú gætir fundið í þessum göngutúrum.

Ég veit að þið vitið þetta allt saman, þetta eru einföld skref til að gera lífið ennþá meira dásamlegra en það er. Líttu á þetta sem mjúkt pot í bakið, bara til að benda þér á að það er til annað en bara nettenging og allir þeir hlutir.

Heimild: mindbodygreen.com