Fara í efni

10 litlir ávanar sem gætu rænt þig hamingjunni

Ef ávanar þínir eru ekki að gera þér gott, þá eru þeir að stela frá þér hamingjunni.
10 litlir ávanar sem gætu rænt þig hamingjunni

Ef ávanar þínir eru ekki að gera þér gott, þá eru þeir að stela frá þér hamingjunni.

 

Hér fyrir neðan má finna ávana sem gætu verið að ræna þig hamingjunni.

 

 

 

1. Að vera sífellt að einblína á líf annarra og gleyma sínu eigin

Ekki vera svo sátt með að heyra velgengni sögur annarra og hvað allt gengur vel hjá þeim að þú gleymir að vinna í eigin velgengni.

Opnaðu skrifbókina og byrjaðu að skrifa þína velgengni sögu. Þú hefur allt sem til þarf til að geta gert allt sem þig langar. Ótrúlegustu hlutir gerast um leið og þú tekur stjórn á eigin lífi.

Ekki vera bara neytandinn- vertu líka sú sem skapar.

Þetta þýðir að láta ekki eftir sér að leyfa öllum öðrum að hugsa, tala og taka þínar ákvarðanir. Þetta þýðir að þú verður að fara að virða eigin skoðanir og hugmyndir og byrja að skrifa eigin sögu.

Hentu því sem skiptir þig engu máli en haltu í þínar óskir og stóru markmiðin, jú, líka þessi litlu og gefðu þeim tíma daglega. Ef þú virkilega elskar það sem þú ert að gera þá er ekkert sem ætti að stoppa þig.

2. Að bíða eftir hinu fullkomna augnabliki

Ekki halda að það sé eitthvað til sem er hið fullkomna augnablik. Augnablikin eru ekki fullkomin, þau eru það sem þú gerir þau að.

Allt of margir sitja og bíða eftir þessu fullkomna augnabliki til að byrja á verkefni eða einhverju sem er þeirra draumur.

Vaknið fólk! Það er ekkert til sem heitir hið fullkomna augnablik til að byrja á nýju verkefni.

Það eina sem getur gert augnablikið fullkomið ert þú! Hversu viljug ertu að byrja og þekkir þú þína eigin galla?

3. Alltaf í vinnunni en nærð ekki endum saman

Vinna án áhuga er eins og fangelsi. Þó þú sért ekki rosalega ánægð í þeirri vinnu sem þú ert í, þá a.m.k þarftu að sýna þinni vinnu áhuga.

Þegar þú „hannar“ þinn lífsstíl en vinnan sem þú ert í er eingöngu til að fá útborgað til að geta borgað reikningana þá áttu eftir að eyða lífinu í að óska þess að þú værir að lifa lífi einhvers annars.

Hugsaðu aðeins um þetta. Þetta er þitt líf; vinnan mun verða stór hluti af lífinu. Þetta snýst ekki allt um peninga; þetta snýst um þig.

Ekki láta þitt starf skilgreina þig. Snúðu þessu við, sestu niður og hugleiddu þetta. Ég mun skilgreina hvert mitt starf er eða verður.

Ef þér finnst þú föst í sama farinu, farðu þá út og leitaðu að þínu óska starfi.

4. Að ala með sér haturstilfinningu

Eins og Martin Luther King Jr. Sagði „Darkness cannot drive out darkness; only light can do that.“

Hatur getur ekki rekið á burtu hatur; aðeins ástin getur það.

Í sannleika sagt þegar við erum full af haturstilfinningum þá taka þær yfir. Við gleymum af hverju við erum svona full af hatri, hvað eða hvern við hötum – við einfaldlega hötum til þess að hata.

Og auðvitað þá förum við einnig að hata okkur sjálf.

Allt og allir sem þú hatar er að „leigja“ pláss í höfðinu og hjartanu þínu. Ef þú vilt losna við haturs hugsanir gagnvart einhverjum eða einhverju þá skaltu einfaldlega hætta að hata.

Í staðinn þá aftengir þú þig frá þessu neikvæða og heldur fram á veginn og alls ekki líta til baka.

5. Að ríghalda í áhyggjur, kvíða og hræðslu

Dag einn munt þú líta til baka og gera þér grein fyrir því að ekkert af þessum áhyggjum og kvíða varð að veruleika – þetta var allt sem sagt tilefnislaust, þessar áhyggjur, hræðsla og kvíðinn.

Er ekki betra að gera sér grein fyrir þessu strax? Þegar þú lítur til baka yfir s.l ár, hversu mörg tækifæri á gleði og skemmtun eyðilagðir þú fyrir sjálfri þér vegna endalausra áhyggja og neikvæðni ?

En við breytum ekki fortíðinni, heldur tökumst við á við daginn í dag og framtíðina á jákvæðum nótum og veltum okkur alls ekki uppúr því sem er búið og gert.

Þú munt finna að það verður nauðsynlegt að sleppa hinum ýmsu hlutum sem eru að draga þig niður og liggja þungt á hjarta og sál.

Slepptu þeim! Ekki festa hlekki um ökkla þína.

Það er nefnilega svo ótrúlega auðvelt að njóta lífsins og lifa í augnablikinu sama hvert ástandið er. Þetta snýst allt um að fletta af sér „lögum“ af vitleysu, losa sig við þessi „lög“ því þau eru bara að draga þig lengra og dýpra niður.

Slepptu takinu á áhyggjum og kvíða, af heift og öfund og slepptu takinu á því að þú þurfir alltaf að hafa rétt fyrir þér og helst stjórna öðrum.

Slepptu takinu af flottræfilshætti og þinni þörf fyrir að allt sé gert eftir þínu höfði.

Undir öllum þessum „lögum“ er hamingjusöm, afkastamikil manneskja.

6. Að dvelja við erfiðleikana

Slæmur dagur er bara slæmur dagur. Veldu að gera hann ekki að einhverju öðru. Tími mótlætis mun óhjákvæmilega hafa áhrif á þær aðstæður sem þú býrð við eða jafnvel vinnuna.

Þú þarft ekki að láta mótlætið hafa áhrif á það hver þú ert eða hvert þú stefnir. Láttu bakslagið ekki hafa áhrif á þig, heldur skaltu aðlagast því en ekki gera meira úr því en þarf og alls ekki gera það að vandamáli í þínu lífi.

Hver dagur hefur sína lexíu og ný tækifæri. Það er ávallt tækifæri til að taka skrefið fram á við á þeirri leið sem þú hefur valið þér. Stundum gerast hlutir sem þú getur ekki forðast en þú hefur valið – ef ekki hvenær, heldur hvernig þú stígur burt frá mótlætinu.

7. Endalaust að eltast við skammvinna ánægju

Það eru tvær tegundir af ánægju – skammvinn og varanleg.

Þessi skamvinna snýst yfirleitt um hluti, fara og kaupa eitthvað fallegt, á meðan þessi varanlega snýst um þig og að auka á vellíðan hugans.

Stundum getur verið erfitt að greina muninn á milli þessara tveggja en þegar fram líða stundir þá er augljóst að seinni möguleikinn er langt um betra val.

8. Að ætla sér allt of mikið í einu

Ef þú vilt breyta einhverju í heiminum, byrjaðu þá á því sem er þér næst. Að ætla sér að breyta helst öllu í einu er ekki hægt og það mun fylla þig af stressi að hugsa um það.

Hinsvegar getur þú gert fáein líf léttari með því að hjálpa þeim og er það mun auðveldara heldur en að hafa allar heimsins áhyggjur á herðunum.

Þú þarft bara að einbeita þér að einni manneskju í einu og byrja á þeirri er stendur þér næst.

Ef þú vilt breyta skapi einhvers þá þarf helst að byrja á þeim er sá aðili umgengst mest. Ef þú getur breytt þeirra skapi í bros þá eru þau bros smitandi. Með þessu ert þú að hafa áhrif á marga aðila í kringum þig, létta þeirra skap og þitt eigið í leiðinni.

9. Að halda í einhvern sem hefur sært þig

Stundum þá þarf að ganga í burtu frá fólki. Það er ekki vegna þess að þér er sama um þann aðila, heldur vegna þess að þessum aðila er sama um þig.

Þegar einhver særir þig aftur og aftur þá verður þú að sætta þig við þá staðreynd að þessi aðili kærir sig ekki um þig.

Þessu getur verið erfitt að kyngja en kyngdu samt því þetta er nauðsynlegt meðal. Hættu að reyna að ganga í augun á þeim og gakktu burt.

Þú eyðir ekki tíma í að reyna að sanna eitthvað fyrir manneskju sem augljóslega kærir sig ekki um þig eða þinn félagsskap. Þú þarft ekkert að sanna.

10. Að magna upp mikilvægi manneskju vegna aðlaðandi útlits

Að blekkja sjálfa sig einfaldlega vegna þess að aðili er afar aðlaðandi er svipað og að velja sér uppáhalds mat eingöngu vegna þess að hann er fallegur á litinn í stað þess að vera góður á bragðið.

Það er engin skynsemi í þessu.

Það er þetta náttúrulega og það sem þú sérð ekki utan á manneskjunni sem gerir það að verkum að sambönd endast.

Svona eins og sumir njóta ilms af myntu á meðan aðrir vilja frekar lykta af kanil. Það eru óneitanlega margir hlutir sem laðar fólk hvort að öðru. Stundum eru það örin á sálinni.

Þessi grein var skrifuð af Marc og Angel og sjá má síðuna þeirra HÉR.

Grein fengin af vef pulptastic.com