Fara í efni

Súper C Smoothie – Dásamlegur fyrir HÚÐINA

Þegar ég heyri fólk segja “ég hef ekki tíma til að borða” þá segi ég “SMOOTHIE” … svo einfalt að skella í einn og ég tala nú ekki um fljótlegt.
Súper C Smoothie – Dásamlegur fyrir HÚÐINA

Þegar ég heyri fólk segja “ég hef ekki tíma til að borða” þá segi ég “SMOOTHIE” …það er svo einfalt að skella í einn og ég tala nú ekki um fljótlegt.

Þessi dásemdar drykkur hér er stútfullur af C-vítamíni sem gerir húðinni okkar svo rosalega gott. Á ensku er hann kallaður Super C beauty smoothie.

Uppskrift er fyrir 2 drykki – einfalt að stækka.

 

 

 

Hráefni:

1 stútfullur bolli af jarðaberjum – pilluð (einfaldast er að stynga röri ofan í jarðaberið og pilla þannig blómið ofan af og innan úr berinu)

½ rauð paprika – í sneiðum

½ bolli af blómkáli – skorið vel niður

1 fullur bolli af spínat – saxað niður

1 banani – má vera frosinn

2 msk af chia fræjum

½ - 1 bolli af möndlu eða kókósmjólk

Ef þú vilt drykkinn vel kaldann þá má setja klaka og draga þá aðeins úr mjólkinni eða sleppa henni og nota kókósvatn í staðinn.

Leiðbeiningar:

Allt hráefni fer í blandarann og er sett á góðann hraða og látið blandast saman þar til drykkur er mjúkur.

Hellið í tvö glös eða krukkur, skellið lokinu á og röri ofan í gat á lokinu.

Njótið vel!