Fara í efni

Áhrif þess að horfa á kattamyndbönd

Það eru ekki allar vísindarannsóknir jafn alvarlegar. Jessical Gall Myrck aðstoðarprófessor við Indiana University Bloomington sýndi heldur betur fram á það þegar hún ákvað að rannsaka hvaða áhrif það hefur á líðan fólks að horfa á mynbönd af köttum.
Áhrif þess að horfa á kattamyndbönd

Það eru ekki allar vísindarannsóknir jafn alvarlegar.

Jessical Gall Myrck aðstoðarprófessor við Indiana University Bloomington sýndi heldur betur fram á það þegar hún ákvað að rannsaka hvaða áhrif það hefur á líðan fólks að horfa á mynbönd af köttum.

Myrck lagði spurningakönnun fyrir yfir 6.500 manns til að komast að því hvort það að hafi jákvæð áhrifa á lund fólks að horfa á kattamyndbönd. Rannsóknin var ekki gerð í þeim tilgangi til að skemmta rannsóknarhópnum en að sögn Myrck eru kattamyndbönd stór þáttur í því hvernig fólk notfærir sér internetið. Til þess að skilja betur áhrif internetsins á líf okkar sé mikilvægt að skilja hvaða áhrif slík myndbönd hafa.

Margir horfa á kattamyndbönd til að fresta verkefnum, til dæmis í vinnunni, og eru þau því oft tengd sektarkennd. Niðurstöður rannsóknarinnar bentu þó til þess að ánægjan sem fylgir áhorfinu geti í mörgum tilfellum vegið þyngra en sektarkenndin sem vill fylgja frestunaráráttu. Auk þess bentu niðurstöðurnar til þess að jákvæð áhrif á líðan við að horfa á mynböndin gæti hjálpað fólki að takast á við verkefni eftir áhorfið.

Smelltu HÉR til að lesa þessa grein til enda og sjá skemmtileg myndbönd. 

Af vef hvatinn.is