Fara í efni

Smokkurinn - Eina getnaðarvörnin sem minnkar líkur á bæði þungun og kynsjúkdómum

Eina getnaðarvörnin sem minnkar líkur á bæði þungun og kynsjúkdómum.
Munið eftir smokknum
Munið eftir smokknum

Eina getnaðarvörnin sem minnkar líkur á bæði þungun og kynsjúkdómum

  • Þunnur gúmmípoki sem rúllað er á stinnt typpið fyrir kynmök
  • Kemur í veg fyrir að sæði fari í líkama stelpu við kynmök
  • Sú getnaðarvörn sem ungt fólk á að nota þegar það er að byrja að stunda kynmök
  • Er 98% öruggur ef hann er notaður rétt
  • Eina getnaðarvörnin sem minnkar líkur á kynsjúkdómum
  • Fæst víða, m.a. í apótekum, matvöruverslunum og bensínstöðvum
  • Til með mismunandi lögun, litum og brögðum
  • Er alltaf einnota
  • Eina getnaðarvörnin fyrir stráka

Leiðbeiningar um notkun smokks

  1. Heilar umbúðir, ef gat er á umbúðum er smokkurinn ónýtur
  2. Kanna dagsetningu á umbúðum, útrunninn smokkur er lítil vörn
  3. Umbúðir opnaðar varlega.  Gott að ýta smokknum örlítið til hliðar og rífa umbúðirnar við hornið.  Ekki nota tennur eða neglur til að ná smokknum úr umbúðunum þar sem gat gæti komið á hann
  4. Smokkurinn er upprúllaður þegar hann kemur úr pakkanum.  Ef hann lítur út eins og hattur þá snýr hann rétt.
  5. Smokknum er rúllað upp á stinnt/hart typpið fyrir kynmök, þ.e. áður en hann kemur við ytri kynfæri stelpunnar
  6. Totan fremst á smokknum tekur við sæðinu.  Takið með vísifingri og þumli um totuna og haldið fingrunum þar á meðan smokknum er rúllað upp á typpið.  Munið að smokkurinn er þunnur og langar neglur geta auðveldlega gert gat á hann
  7. Losa loft út með því að strjúka með annarri hendi upp eftir typpi
  8. Þegar kynmökum er lokið þarf að taka typpi sem fyrst úr leggöngum annars er hætta á að smokkur detti af.  Best er að halda við neðri hluta smokksins þegar typpi er dregið út.
  9. Smokkurinn er tekinn varlega af, bundinn hnútur á hann og honum hent í rusl
  10. Alltaf á að nota nýjan smokk við hver kynmök

Skoðið hreyfimynd á Kynfræðsluvef Námsgagnastofnunar með því að smella: hér

Heimild: doktor.is

Könnun

Hvaða hreyfingu stundar þú?