Fara í efni

Mjúkar kvenmannslínur senda karlmenn í sæluvímu

Að horfa á kvenmannslíkama sem er með mjúkar línur virkar eins og verðlaun fyrir karlmenn, svona svipað og að fá sér í glas, segja nýjustu rannsóknir.
Flottar mjúkar kvenmannslínur
Flottar mjúkar kvenmannslínur

Að horfa á kvenmannslíkama sem er með mjúkar línur virkar eins og verðlaun fyrir karlmenn, svona svipað og að fá sér í glas, segja nýjustu rannsóknir.

Þessar nýju niðurstöður gætu aðstoðað við að útskýra afhverju karlmenn eru oft uppteknir af klámi.

Mjúkar línur og breiðar mjaðmir á konum er tengt við frjósemi og góða heilsu. Stundaglas-línurnar þykja kynþokkafullar og hafa rannsóknir í gegnum tíðina hjá mismunandi menningarheimum sýnt þessar niðurstöður.

Til að komast til botns í þessu máli fengu vísindamenn 14 karlmenn, alla um 25 ára til að meta til einkunnar myndir af afturenda á sjö konum sem voru teknar fyrir og eftir aðgerð, til að gefa þeim mýkri línur og stærri afturenda.  Þessar aðgerðir voru ekki til að minnka fitu, heldur var henni dreyft með því að taka fitu af mittinu og sprauta henni í afturendann hjá konunum.

Heilaskönnun hjá karlmönnunum sýndi það að sjá myndir eftir aðgerðina varð sá hluti heilans sem tengist verðlaunum virkari og einnig svæði sem tengjast viðbrögðum við eiturlyfjum og áfengi. Ekkert sem kemur á óvart svo sem. Karlmönnum finnst gaman að horfa á aðlaðandi líkama.

Hugh Hefner hefði kannski bara geta sagt okkur þetta með því að sýna hvað hann á háa upphæð á sínum bankareikningi.

Sem dæmi, þá eru þessar niðurstöður afar nauðsynlegar til að skilja klám-fíkn og tengda sjúkdóma, eins og t.d ristruflanir þegar ekkert klám er við hendina.

Konur, það er sexy að hafa flottar línur. Munið það.

Fleira áhugavert um þetta málefni má svo lesa HÉR

 

Könnun

Hvaða hreyfingu stundar þú?