Fara í efni

Kynlífið þarf ekkert alltaf að vera fullkomið

Sumir vilja meina að lykilinn að löngu og farsælu hjónabandi sé gott kynlíf.
Kynlífið þarf ekkert alltaf að vera fullkomið

Sumir vilja meina að lykilinn að löngu og farsælu hjónabandi sé gott kynlíf.

Þótt ekki séu allir því sammála þá verður víst að viðurkennast að kynlífið skiptir töluverðu máli í þessu samhengi.

Samkvæmt nýlegri rannsókn eru meiri líkur á hjónaskilnaði ef kynlífi er ábótavant. Rannsóknin, sem náði til 732 hjóna á aldrinum 57 til 85 ára, þótti sýna að þeir sem sögðust afar sjaldan eða aldrei stunda kynlíf voru óánægðari í sínu hjónabandi en þeir sem voru iðnari í rúminu.

Mýta að eldra fólk stundi ekki kynlíf

Já, og þótt sumir haldi annað þá stundar fólk svo sannarlega kynlíf þótt það sé komið á efri ár. Sú gamla mýta er heldur öðru fram er kolröng. Margir hreinlega blómstra kynferðislega á þessum seinni helmingi ævinnar.

Konur til dæmis, sem eru búnar að fara í gegnum tíðahvörf, eru flestar orðnar sáttar í eigin skinni og eru öruggari með sig. Þær eru líka margar áhyggjulausari og óhræddari við að sleppa fram af sér beislinu enda þurfa þær ekki lengur að hafa áhyggjur af getnaðarvörnum og barneignum.

Kynlíf ekki bara kynlíf ... LESA MEIRA

 

 

 

Könnun

Hvaða hreyfingu stundar þú?