Fara í efni

Kynlíf og allt sem því fylgir

Sumstaðar má alls ekki minnast á kynlíf þó svo að kynlíf sé einn mikilvægasti hlutinn af lífinu. Það er partur af samböndum, hjónaböndum og stór partur af lífinu. Án kynlífs er ekki hægt að fjölga mannkyninu.
Fróðleikur um kynlíf og margt fleira
Fróðleikur um kynlíf og margt fleira

Sumstaðar má alls ekki minnast á kynlíf þó svo að kynlíf sé einn mikilvægasti hlutinn af lífinu. Það er partur af samböndum, hjónaböndum og stór partur af lífinu. Án kynlífs er ekki hægt að fjölga mannkyninu.

-         Á hverjum degi er kynlíf stundað 120 milljón sinnum út um allan heim.

Við mannfólkið erum þannig gerð að við viljum fjölga okkur og á meðan um 4% af fólkinu á jörðinni stundar kynlíf á hverjum degi þá er ekkert skrýtið að fæðingartíðni haldi áfram að aukast í mörgum löndum út um allan heim.

-         Stærsta fruman í líkamanum er eggið og sú minnsta er sæðisfruman.

Þú getur ekki séð eggið eða sæðirfrumuna með berum augum, þau eru það smá.

-         Það er þrennt sem að ófrískum konum dreymir oftast á meðgöngu, froskar, ormar og pottaplöntur.

Hormónar á meðgöngu geta orsakað skapsveiflur, allskyns langanir og margar aðrar óvæntar breytingar. Og eins einkennilegt og það er að þá er það oft hormónunum að kenna hvað konum dreymir á meðgöngu.

-         Tennurnar byrja að vaxa 6 mánuðum áður en barn fæðist.

Flest öll börn fæðast tannlaus. Samt byrja tennurnar að vaxa 6 mánuðum áður en barn fæðist. Á 9 til 12 viku byrjar fóstrið að móta tennur sem að síðar meir verða að fyrstu barnatönnunum.

-         Börn fæðast alltaf með blá augu.

Litur augnanna á barni fer eftir lit augna hjá foreldrum. Samt fæðast flest öll börn bláeygð. Ástæðan fyrir þessu er litarefnið melanin. Melanin í augum ungabarns þarf oft tíma eftir fæðinguna til að ná að dekkjast og að lokum kemur í ljós hvað augnlit barnið mun vera með.

-         Eitt af hverjum 2000 börnum sem fæðast eru með tönn.

Mæður með barn á brjósti finnst þetta eflaust ekki spennandi. Stundum er þessi tönn venjuleg barnatönn en þetta getur líka verið auka tönn sem að dettur úr áður en barnatennurnar láta sjá sig.

-         Fóstur fær fingraför á þriðja mánuði meðgöngu.

Þrátt fyrir að eiga ansi langt í land með að þroskast að þá fær fóstur fingraför á viku 6 til 13 og þessi fingraför breytast aldrei.

-         Flestir karlmenn fá standpínu á hverjum klukkutíma á meðan þeir sofa.

Líkamar flestra eru miklu meira vakandi á meðan við sofum en við höldum. Þetta er blandan af blóðflæðinu og testosterone framleiðslu. Að fá standpínu í svefni er ósköp eðlilegt og í raun nauðsynlegt í REM svefni.

Fróðleikur frá Heilsutorg.is

 

Könnun

Hvaða hreyfingu stundar þú?