Fara í efni

ALLT er hægt með viljann að vopni.

En að ná aftur heilsu og vinna að bættari heilsu og betra lífi er mér allt. Heilsan er að dýrmætasta sem við eigum .
Heilsan er dýrmæt.
Heilsan er dýrmæt.
Góðan daginn.

Jæja ég er komin í gallann...vel upp hysjaður því nú verður stöngin sett á herðar og klukkutími í Body pump framundan.

Ef ég gæti spólað til baka í lífinu og fengið eitt ráð sem ég yrði að fara eftir passaðu upp á líkamann. Hann er þér allt.

Þetta er eitthvað sem ég ætla fara eftir það sem eftir er af mínu lífi.
Stundum þarf maður víst að læra erfiðu leiðina á því sem er svo ofureinfalt.
Að veikjast og missa heilsuna er svo mikið sjokk.

En að ná aftur heilsu og vinna að bættari heilsu og betra lífi er mér allt.
Heilsan er að dýrmætasta sem við eigum :)

Ég átti í gær samtal við einn kæran ræktarfélaga.
Hann er einn sá allra duglegasti og flottasti einstaklingur sem ég þekki.
Búin að fylgjast með honum í rúm tvö ár núna.
Hann hefur aldrei gefist upp!
Hann kennir mér á hverjum degi að ALLT er hægt.
Ótrúlegur árangur og raunverulega ótrúlegur einstaklingur
Hann er svo hraustur og að sjá hann hlaupa á brettinu eins og engin sé morgundagurinn 
Hann hefur misst rúm 90 kíló.
Hann er kraftarverk.
Takk fyrir að sína mér að allt er hægt....ALLT 
Það er svona fólk sem fær fólk eins og mig til að vilja halda áfram.

Með væntumþykju og kærleik á sjálfan sig er allt hægt .

Njótið dagsins .