Fara í efni

VIÐTALIÐ: Pálína Ósk hjá UMFÍ í skemmtilegu viðtali, en hún er verkefnastjóri Landsmótsins

Hér á eftir fer viðtal við Pálínu Ósk Hraundal hjá Ungmennafélagi Íslands (UMFÍ) sem Heilsutorg tók í aðdraganda Landsmóts UMFÍ sem fer fram á Sauðárkróki dagana 13. – 15. júlí en Landsmótið er hugsað sem fjölskylduhátíð þar sem saman fer keppni, heilsurækt, skemmtun og góð samvera fólks á öllum aldri.
VIÐTALIÐ: Pálína Ósk hjá UMFÍ í skemmtilegu viðtali, en hún er verkefnastjóri Landsmótsins

Hér á eftir fer viðtal við Pálínu Ósk Hraundal hjá Ungmennafélagi Íslands (UMFÍ) sem Heilsutorg tók í aðdraganda Landsmóts UMFÍ.

En mótið fer fram á Sauðárkróki dagana 13. – 15. júlí og er Landsmótið hugsað sem fjölskylduhátíð þar sem saman fer keppni, heilsurækt, skemmtun og góð samvera fólks á öllum aldri.

 

Fullt nafn:

Pálína Ósk Hraundal

Segðu okkur aðeins frá sjálfri þér og hvaðan ert þú?

Ég er fædd og uppalin í Reykjavík. Hef óendanlegan áhuga á útivist og lýðheilsu samfélags.
Hef unnið mikið í kringum þessi mál undanfarin ár og fæ aldrei leið.

Þetta er svo skemmtilegt !

Hver eru þín helstu áhugamál?

Útivist, lýðheilsa og uppeldi barna

Átt þú bakgrunn í íþróttum?

Ég er með bakgrunn í útivist, hef haft áhuga á hreyfingu í náttúrunni frá því ég man eftir mér. Hef keppt í ótal keppnum sem tengist útivistinni.

Hvað er skemmtilegast við það að vinna hjá UMFÍ?

Ég kem inn í þetta verkefni sem verkefnastjóri Landsmótsins en hef áður verið verkefnastjóri yfir Unglingalandsmótinu sem haldið var á Sauðárkróki árið 2014.

Það skemmtilegasta við að vinna fyrir UMFÍ er ungmennafélagsandinn. Hitta allt þetta jákvæða fólk sem tilbúið er að leggja hjálparhönd til þess að þessi mót verði sem glæsilegust.
Jákvæðni,dugnaður og gleði einkenna þessi mót og félagið.

Landsmót UMFÍ 2018 á Sauðárkróki hefst eftir tæpa viku nú er þetta algert tímamóta landsmót hvernig hefur gengið að „selja“ hugmyndina og fá fólk í lið með ykkur í að halda svona breytt landsmót. Hafið þið einhverja hugmynd um hver þátttakan er?

Skráning er að koma mjög mikið inn núna á lokasprettinum. Við finnum fyrir ánægju með  dagskrána. Dagskráin er mjög fjölbreytt og skemmtileg. Það geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi, bæði keppni og ekki keppni. Íþróttir á daginn – Skemmtun á kvöldin.

DAGSSKRÁ HELGARINNAR.

 

Hér getur þú séð mína draumadagskrá:


Fimmtudagur: 

Þriggja tinda gangan

Föstudagur:
07:30 – 08:30 Morgunjóga
13:00 – 14:00 Gönguferðir
14:00 – 16:00 Útivist
18:00 – 20:00 Götuhlaup

Laugardagur: 
07:30 Götuhjólreiðar
13:00 Biathlon
Pallaballið um kvöldið

Sunnudagur. 
12:00 – 14:00 Fjallahjólreiðar

Hvernig er veðurspáin?

Við erum búin að gera góða samninga við veðurguðina fyrir helgina.

Nefndu þrennt sem þú átt sjálfur alltaf til í ísskápnum?
Ost, mjólk og sódavatn

Hver er þinn uppáhalds matur & matsölustaður?

Tælenskur matur

Ef þú ætlar að „tríta“ þig sérlega vel hvað gerir þú?            

Geng á eitthvað skemmtilegt fjall

Hvað segir þú við sjálfa þig þegar þú þarft að takast á við stórt/erfitt verkefni?

Þetta verður skemmtileg áskorun ! Orð eru til alls fyrst.

Hvar sérð þú sjálfa þig fyrir þér eftir 5 ár ?

Að keppa í skemmtilegri grein á Landsmóti.