Fara í efni

Vanillubollakökur með hindberjafyllingu og kampavínskremi frá Eldhúsperlum

Dásamlegar vanilubollakökur.
Vanillubollakökur með hindberjafyllingu og kampavínskremi frá Eldhúsperlum

Vanillubollakökur með hindberjafyllingu og kampavínskremi (Örlítið breytt uppskrift frá Sugar and Soul) – Um 20 kökur.

Ekki leiðinlegt að bjóða upp á þessar um páskana.

 

Bollakökur:

Aðferð: Bakið bollakökurnar skv. leiðbeiningum og kælið. Þegar kökurnar hafa kólnað alveg gerið þið holur ofan í hverja köku, takið um það bil teskeið eða rúmlega það úr miðjum kökunum, þarna fer svo fyllingin góða.

Hindberjafylling:

  • 4 bollar frosin hindber
  • 3/4 bolli sykur
  • 4 msk maíssterkja (Maízena)
  • 4 msk vatn
  • 1 vanillustöng eða 1 tsk vanillusykur (má sleppa)

Aðferð: Setjið hindber, sykur og vanillu í pott. Kveikið undir, látið hindberin þiðna og byrja að sjóða. Tekur 10-15 mínútur. Hrærið maíssterkju og vatni saman í lítilli skál og hellið út í hindberjablönduna. Hrærið í og látið sjóða í 1-2 mínútur þar til blandan þykknar. Látið kólna alveg. Setjið rúmlega eina teskeið af fyllingunni í hverja bollaköku. Geymið í lokuðu íláti í ísskáp ef þið ætlið ekki að nota fyllinguna strax, hana má gera með nokkurra daga fyrirvara.

Kampavínskrem:

  • 250 gr mjúkt smjör (ekki ósaltað)
  • 500 gr flórsykur
  • 1/2 – 1 dl gott freyðivín að eigin vali – Ég notaði Prosecco, líka gott að nota Cava eða bara alvöru Champagne.. ykkar er valið!

Aðferð: Þeytið saman smjör og flórsykur þar til ljóst og létt. Bætið vínínu út í smám saman þar til kremið er létt og mjúkt, eins og þið viljið hafa það. Setjið kremið í sprautupoka og sprautið fallega ofan á kökurnar. 

Frá eldhusperlur.com