Fara í efni

Vald er að valda eigin lífi - hugleiðing Guðna í dag

Vald er að valda eigin lífi - hugleiðing Guðna í dag

Vald

Vilji er vald.

Við tengjum orðið vald gjarnan við ofbeldi og kúgun þeirra sterkari gagnvart þeim veikari – valdbeiting, yfirvald, ægivald.

Þetta er notkun á orðinu sem er algerlega góð og gild, en í þessum skrifum hefur orðið vald aðra merkingu og kærleiksríkari:
Vald er að valda eigin lífi; vald er val um hvað þú gerir í lífinu og hvernig þú velur að valda því.

Markmiðið er að þú finnir til slíkrar ástar í eigin garð að þú leyfir þér að velja fyrir þig, í þínu lífi.