Fara í efni

Tíramímús frá Eldhúsperlum

Ég hef legið á þessari uppskrift eins og ormur á gulli. Það er langt síðan ég bauð upp á tíramímúsina sem eftirrétt og hef eiginlega ekki getað hætt að hugsa um hana síðan.
Tíramímús frá Eldhúsperlum

Ef þetta er ekki jólaeftirrétturinn í ár þá veit ég ekki hvað. Dásamleg Tíramímús frá Eldhúsperlum.com

Ef þið kunnið að meta tiramisu og þess háttar eftirrétti get ég lofað að þetta á eftir að slá í gegn hjá bragðlaukunum. Nú og fyrir utan bragðið þá tekur þetta afar stutta stund í undirbúningi og getur svo bara staðið inni í ísskáp og beðið þess að vera borðað.

 

Ef þið getið þá beðið. Ég fékk hugmyndina að uppskriftinni upphaflega á matarblogginu crazyforcrust.com – Þar má finna ýmislegt girnilegt. Uppskriftinni breytti ég svo lítillega. Uppskriftin er rífleg fyrir fjóra sælkera sem frekar stór eftirréttur. Mér finnst þó huggulegra að hafa eftirrétti litla og sæta svo mér þykir uppskriftin passleg fyrir sex.

Tíramímús (fyrir 4-6):

  • 2 sléttflullar tsk instant kaffiduft (instant espressoduft er mjög gott ef þið eigið það)
  • 3 msk sjóðandi vatn
  • 2,5 dl rjómi
  • 1,5 dl flórsykur
  • 250 gr mascarpone rjómaostur við stofuhita
  • 1 vanillustöng (eða 2 tsk vanilluextract)
  • 2 msk amaretto líkjör eða annar sætur líkjör (hægt að nota t.d. Tía maria, sérrý, Grand Marnier eða Marsala) Má líka sleppa víninu.
  • 2 msk ósætt kakóduft
  • 50 gr súkkulaði

Aðferð: Byrjið á að þeyta rjómann. Geymið hann í kæli. Blandið kaffiduftinu og heita vatninu saman í bolla og leyfið að rjúka. Þeytið mascarpone ostinn með flórsykrinum þar til silkimjúkt. Skafið fræin vel innan úr vanillustönginni. Bætið vanillu. líkjör og kaffiblöndunni saman við ostablönduna og þeytið vel saman. Blandið að lokum þeyttum rjómanum varlega saman við með sleikju.

Setjið blönduna í sprautupoka og sprautið í falleg glös (líka hægt að setja með skeið í glösin). Dustið örlitlu kakói gegnum sigti á milli laga svo úr verði falleg falleg lagskipting. Rífið að lokum súkkulaði yfir efsta lagið í öllum glösunum. Kælið í 1-2 klst og berið fram kalt. Má gera daginn áður en gætið þess þá að setja filmu yfir glösin. 

Dásamleg uppskrift af eldhusperlur.com