Fara í efni

Ertu með timburmenn ? Nokkur góð ráð til að losa við þynnkuna

Auðvitað er besta leiðin til að sleppa við timburmenn að drekka ekki áfengi. En oft er gaman að fá sér í glas og þá þarf að takast á við afleiðingarnar.
Hinir hvimleiðu timburmenn
Hinir hvimleiðu timburmenn

Auðvitað er besta leiðin til að sleppa við timburmenn að drekka ekki áfengi. 

En oft er gaman að fá sér í glas og þá þarf að takast á við afleiðingarnar.

Að drekka vatn með áfengi hjálpar til og þú fyllir á vatnsbirgðir líkamans í leiðinni sem er besta leiðin til að verða ekki ofurölvi.

Hár af hundi

Nei, það læknar ekki timburmenn að leggja hár af hundi fyrir framan hurðina á herberginu þínu.

Þó svo að Bloddy Mary sé freistandi daginn eftir að þá er Virgin Mary miklu betri kostur. “Það versta sem þú gerir, er að fá þér áfengan drykk í þynnkunni” segir Charles Cutler, MD.

Áfengið bjargar þér kannski tímabundið en gerir í raun illt verra með tímanum. Timburmenn láta þér líða afar illa vegna þess að áfengi er eitur, útskýrir Dr.Cutler, og þú verður að gefa líkamanum séns á að jafna sig. Drykkur morguninn eftir verður til þess að þú færð enn verri timburmenn daginn eftir þann drykk.

Feitur morgunverður

Það er ekki vísindalega sannað að raða í sig beikoni og eggjum lagi timburmenn þó svo margir vilji meina það. “Feitur matur orsakar brjóstsviða” segir Dr.Cutler, sem mælir með því að fólk haldi sig við mat sem auðvelt er að melta, eins og ristað brauð eða morgunkorn. “ Þú verður að koma kaloríum ofan í þig”.

k

Borða léttan mat og drekka nóg af vatni segir John Brick PhD, en hann er höfundur bókarinnar The doctor’s Hangover Handbook. “Enginn sérstakur matur er betri en annar þó svo að samloka með hunangi hjálpi mörgum” Segir Brick.

Alka-Seltzer

Alka-Seltzer varð áttræður árið 2011 og þetta fræga meðal hefur sennilega verið notað til að meðhöndla timburmenn allan þennan tíma. Árið 2001 setti fyrirtækið á markað Morning Relief lyf sem að er hannað fyrir timburmenn.

j 

Alka-Selzer inniheldur sodium bicarbonate sem er betur þekkt sem baking soda og hjálpar það að róa magann með því að gera magasýrurnar óvirkar. Önnur efni í Alka-Selzer eru asperín og sítrónusýra en þau geta átt það til að pirra magann eftir nótt að mikilli drykkju.

Lyf við timburmönnum

Það eru til mörg lyf við timburmönnum eins t.d Chaser, PreToxx og RU 21 en afar litlar sannanir eru til um það hvort þessi lyf virkilega virki. “Lyf við timburmönnum hafa verið rannsökuð og eru ekki að nýtast sem slík eða virka aðeins á hluta af vanlíðan vegna drykkju” segir Joris C.Verster, PhD en hún hefur rannsakað timburmenn við Utrecht University í Hollandi.

Dr.Cutler mælir með að taka inn fjölvítamín í stað þessara lyfja og hlaða næringu í líkamann.

Kaffi

Ef þú drekkur kaffi reglulega getur verið bæði gott og vont að sleppa kaffi daginn eftir segir Brick. Þú gætir fengið slæman höfuðverk af koffein skorti ofan á timburmennina. Þannig að einn kaffibolli er kannski gott ráð.

Hafa skal í huga að koffein þrengir æðarnar og hækkar blóðþrýstinginn. “Þetta getur gert timburmenn enn verri” segir Brick. “Ef þú drekkur kaffi reglulega ættir þú að fá þér hálfan bolla af kaffi daginn eftir drykkju og bíða í c.a hálftíma til klukkutíma og sjá þá hvernig þér líður.

Vatn og íþróttadrykkir

Vökvatap sem að líkaminn verður fyrir vegna áfengis drykkju er ástæða þess að þér líður svona illa daginn eftir. Sérfræðingar vita í rauninni afar lítið um það hvað orsakar timburmenn.

En hvað um það, vertu viss um að fylla á vatnsbirgir líkamans strax daginn eftir og þér ætti að líða aðeins skár. Þú getur drukkuð djús, Gatorade og aðra íþróttadrykki.

Verkjalyf

Verkjalyf eins og Panodil og Paratabs ætti að laga hausverkinn og hjálpa þér að hvílast. Og þessi verkjalyf er hægt að nálgast í næsta apóteki. Einnig er verkjalyfið TREO afar gott en það eru töflur sem að leysa á upp í vatni.

k

Hreyfðu þig

Létt æfing getur hjálpað í baráttunni við þynnkuna. Þ.e ef þú kemst af stað.

“Mundu: Ef þú hefur verið að drekka mikið  magn af áfengi að þá er möguleiki á að þú hafir orðið fyrir vökvatapi, einnig vantar í þig næringu og æfing kallar á vökva og næringu” segir Dr.Cutler. “Að hreyfa sig er alltaf afar gott, en þegar þú vaknar daginn eftir fyllerí, þá er æfing ekki góð hugmynd” Það sem þú þarft er hvíld, bætir hann við.

Sána

Heldur þú að það sé hægt að svitna út áfengið og þau eiturefni sem að því fylgja? Nei aldeilis ekki. Sána getur orsakað hættulegar breytingar á blóðflæði í líkamanum. “Það síðasta sem að þú átt að gera er að raska eðlilegu blóðflæði með ofur-hita” segir Dr. Cutler.

Líkaminn er nú þegar að vinna upp vökvatap og það að fara í sána og svitna mikið getur verið hættulegt og jafnvel leitt til dauða. Rannsók sem gerð var í Helsinki varar við sánu eftir áfengisdrykkju.

Svefn

Fólk sefur illa eftir áfengisdrykkju. Áfengið orsakar það að þú sofnar afar fljótt en þegar áfengið byrjar að hverfa úr líkamanum eftir nokkra klukkutíma finnur hann fyrir því og þá fer svefninn að truflast og þú vaknar fljótlega. Þó svo að lítill svefn orsaki ekki timburmenn að þá getur of lítill svefn gert hlutina enn verri.

Ef þú hefur þann lúxus að geta sofið þetta úr þér daginn eftir skaltu gera það. Þokan í höfðinu á þér og aumur líkaminn munu þakka þér fyrir. “Líkaminn hefur ótrúlega hæfileika til að lækna sig sjálfur” segir Dr.Cutler.

k

Í lokin, eina örugga leiðin til að losna við timburmenn fyrir fullt er að drekka ekki áfengi.

Heimild: health.com