Fara í efni

Þrennt til að byrja daginn á - hugleiðing dagsins frá Guðna

Þrennt til að byrja daginn á - hugleiðing dagsins frá Guðna

ÖRLÍTIL HVATNING

Þrennt vil ég hvetja þig til að gera.
Í fyrsta lagi að nota morgunsturtu til að núllstilla þig, losna við mögulegan kvíðahnút úr maganum og fara með hreinan líkama inn í daginn. Mörg okkar líta á hreina vatnið sem sjálfsagðan hlut. Breytum því – förum í beina og nána snertingu við vatnið sem stendur okkur til boða, þennan lífsins vökva sem við getum ekki verið án, og gerum sturtuna að stórkostlegri athöfn.

Í öðru lagi hvet ég þig til að skilja hversu merkilegt og mikilvægt rými svefnherbergið er. Gerðu það að musteri, hafðu það hreint og fínt og fjarlægðu allt þaðan sem veldur óróa. Farðu inn í svefninn í vitund, með því markmiði að sofa vel og hvílast.

Í þriðja lagi hvet ég þig til að muna að stærsta tækifærið til vaxtar felst í vitund gagnvart markvissri öndun, mat og drykk. Ég hvet þig til að vera alltaf í fullri vitund þegar þú setur mat eða drykk upp í þig – mundu í hverjum bita og hverjum sopa að orkan í matnum verður að orku í þér, verður að þér. Mundu að umfang öndunar er umfang lífsins og að súrefni er forsenda skilvirkrar meltingar og nýtingar þeirrar orku sem þú innbyrðir.

Mundu þess vegna að allt sem fer ofan í þig er ást.