Fara í efni

Þörf fyrir kynlíf fylgir manneskjunni alla ævi

Fólk er ekkert öðruvísi hér en annars staðar í þjóðfélaginu, fólk myndar ný sambönd á hjúkrunarheimilum og stundar kynlíf. Þetta segir Guðrún Jóhanna Hallgrímsdóttir deildarstjóri iðjuþjálfunar á Hrafnistu í Hafnarfirði.
Þörf fyrir kynlíf fylgir manneskjunni alla ævi

Fólk er ekkert öðruvísi hér en annars staðar í þjóðfélaginu, fólk myndar ný sambönd á hjúkrunarheimilum og stundar kynlíf.

Þetta segir Guðrún Jóhanna Hallgrímsdóttir deildarstjóri iðjuþjálfunar á Hrafnistu í Hafnarfirði.

Hún segir að við fæðumst sem kynverur og það fylgi okkur alla ævi. „Kynlíf snýst ekki endilega um samfarir, heldur snertingu, nánd, faðmlög og kossa“ segir hún.

Efnið feimnismál

Sjálf fékk hún Siggu Dögg kynfræðing til að halda fyrirlestur á Hrafnistu í fyrra og var það í fyrsta skipti sem hún ræddi um kynlíf við þennan aldurshóp. Hún segir að fyrirlesturinn hafi verið vel sóttur, en efnið sé enn feimnismál. „Sú kynslóð sem nú er á hjúkrunarheimilunum fékk enga kynfræðslu og ræddi þetta ekki mikið sjálf. Eftir 20 ár, verður þetta áreiðanlega gerbreytt“ segir hún.

Kynlíf eykur vellíðan

Guðrún Jóhanna nefnir að flestir séu í einbreiðum rúmum, það sé ekki alltaf hentugt vilji þeir stunda kynlíf. Þetta sé ekki eins og hjá unga fólkinu. Hún segist vilja opna umræðuna um þessi mál. Kynlíf hafi góð áhrif á fólk, sé verkjastillandi og auki vellíðan. „Mögulega gæti það í sumum tilvikum komið í stað lyfja“, segir hún og hlær.

Aðstandendum ekki sama

Guðrún segir einnig að aðstandendur geti átt erfitt með að sætta sig við ný sambönd, sérstaklega ef einstaklingurinn er með minnisskerðingu. „En á meðan fólki líður vel saman og allt er innan velsæmismarka, er þetta þá ekki allt í góðu“, spyr hún. Eins hefur hún orðið vör við að þegar fólk flytur á hjúkrunarheimili og makinn verður eftir heima, þá missir það tækifæri til nándar og snertingar. Þá sé hætta á að depurð og einmanaleiki fylgi í kjölfarið . . . LESA MEIRA