Fara í efni

Kuldabola súpa - Thai style

Þessi súpa er líka góður sem grunnur. Því það er æði að bæta útí , kjúlla, fisk, baunum, eggjum, núðlum, pasta, blómkálsgrjónum bara leika sér.
Þessi súpa kemur öllum til hita.
Þessi súpa kemur öllum til hita.
Dásamleg súpa 

Smá tai eða indversk ....

Innihald.

1,5 liter vatn.
1/2 dós Kokosmjólk ( kaupi alltaf þessar litlu og nota þá heila þannig)
1 msk. olía til að steikja upp úr
1 sæt kartafla frekar stór
3 Stórar Gulrætur
1 Rauðlaukur
1 stöngull Sellery
3 rif Hvítlaukur
4 cm Engifer
1/2 piri piri chilli ( rótsterkur !! svo þeir sem vilja ekki mikið chilli bara rauðan venjulegan og eftir smekk)
Lófafyllir af ferskum Kóriander
Lófafyllir Grænar baunir ( belgbaunir)
2 tsk. rautt karry paste
2 stykki Grænmetisteningur
1 tsk fish sause
1 tsk., Karry
1 tsk. Tandori
1 tsk. Sukrin Gold
1/2 poki lemongrass stir-fry-paste ( pinkulitlir kassar og poki inn í kassanum fæ í Netto og minnir Krónunni frá deSIAM)
Salt
Pipar mulin

Aðferð.

Hita oliu í potti.
Steikja laukinn-hvítlaukinn-chilli-engifer-sellery-Kórander-salt og pipar. Síðan karry paste-Lemon grass paste,sukrin cold , allt kryddið og fish sause.
Hræra vel og bara rétt steikja.
Síðan bæta við vatninu , grænmetistening,Kokosmjólkinni, kartöflunni , gulrótunum og baununum.
Fínt að skera þetta aðeins niður eins og á mynd.
Ekkert voða fínt eða mikið dútl....fer hvort eð er allt í blandann 
Leifa þessu öllu að sjóða í 15 min .
Þá setja allt í blandara eða nota töfrasprota og búa til silki mjúka súpu.
Setja í pottinn aftur og leifa malla aðeins 
Krydda til með salt og pipar.
Finna sinn styrkleika með chilli er heila málið við svona súpur.
Síðan eru ekki allir sem eru hrifnir af Kórander....þá er fínt að nota Steinselju.
Og líka bara leika sér með krydd og grænmetið 
Þessi súpa er líka góður sem grunnur.
Því það er æði að bæta útí , kjúlla, fisk, baunum, eggjum, núðlum, pasta, blómkálsgrjónum 
bara leika sér.
Frábær í nesti þessi :)

Virkar vesen og vandræði...en ekkert mál :)

Algjör bomba þessi !