Fara í efni

Sumarlegt og orkumikið salat

Avócadó- og karrýsalat með spíraðri próteinblöndu og radísuspírum
Fullur diskur af hollustu
Fullur diskur af hollustu

Avócadó- og karrýsalat með spíraðri próteinblöndu og radísuspírum

hráefni:

1 paprika, skorin í bita

2 avócadó

2 sellerístilkar

3 tómatar

1 box próteinblanda frá Ecospíru

½ box radísuspírur frá Ecospíru

Dressing:

1/ dl vatn
2 msk sítrónusafi
2 msk tamarísósa
1 msk hunang
2 tsk karrý
1 tsk kummin eða koriander eftir smekk

Paprikan, avócadó og tómatar skorin í bita. Fínhakkað selleríið blandað saman við. 

Vatni, sítrónusafa, tamarísósu og hunangi blandað saman ásamt kryddinu og hellt yfir grænmetið, spírunum dreift yfir salatið síðast.

Áslaug Snorradóttir á heiðurinn af ljósmyndinni.

Lumar þú á góðri og hollri uppskrift ? Ef svo er, sendu hana þá á mig.