Fara í efni

Súkkulaðihrákaka

Þessa súkkulaðihráköku er flott að gera t.d. 1-2 dögum fyrir afmælið eða saumaklúbbinn. Svo er líka alveg bráðnauðsynlegt að bera hana fram með vanilluís eða rjóma.
Súkkulaðihrákaka
Súkkulaðihrákaka

Innihald – botninn:

  • 1 ½ bolli möndlur með hýðinu
  • 1 bolli pekanhnetur
  • ¼ bolli lífrænt kakóduft
  • 4 msk kókosolía
  • 3 msk maple sýróp

Innihald – fyllingin:

  • 3 fullþroskaðir bananar
  • 2 msk maple sýróp
  • 2 msk lífrænt kakóduft
  • 2 msk möndlumjólk
  • 1 msk chiafræ
  • ¼ tsk sjávarsalt

Aðferð - botninn:

  • Möndlur og pekanhnetur blandað vel saman í matvinnsluvél.  
  • Kakóduftinu bætt við ásamt kókosolíunni og maple sýrópinu.
  • Blöndunni þrýst ofan í botninn á hringformi.

 Aðferð – fyllingin:

  • Bananar, kakódufti og salti blandað saman í matvinnsluvél.  Maple sýróp, möndlumjólk og chiafræjum bætt við.
  • Fyllingunni hellt yfir botninn og slétt úr.
  • Skreytt með pekanhnetum og ferskum jarðarberjum. 

Geymd í ísskáp í 3-5 tíma áður en hún er borin fram – mjög góð 1-2 daga gömul.  Borin fram með vanilluís eða rjóma.

Með heilsukveðju,
Ásthildur Björns
Heilsumarkþjálfi
Hjúkrunarfræðingur B.Sc
ÍAK-einkaþjálfari
www.maturmillimala.com