Fara í efni

Súkkulaði og jarðaberja smoothie - dúndur góður til að hlaða á orkubúið

Þessi slekkur á súkkulaðilöngunum.
Súkkulaði og jarðaberja smoothie - dúndur góður til að hlaða á orkubúið

Algjör nammi drykkur ef þig vantar smá búst í orkubúið.

Hlaðinn vítamínum og steinefnum og slekkur á súkkulaði þörfinni.

Uppskrift er fyrir tvo drykki.

Hráefni:

1 vel full msk af hrá kakó dufti

1 bolli af létt mjólk eða mjólk að eigin vali – ég notaði kókósmjólk því hún fer einstaklega vel með jarðaberjum og súkkulaði

1 dós af sykurlausum jarðaberja jógúrt

½ bolli af frosnum jarðaberjum

Leiðbeiningar:

Gæti ekki verið einfaldara, setjið allt hráefni í blandarann og látið blandast þar til drykkur er mjúkur og freiðandi.

Drekkist strax.

Njótið vel!