Fara í efni

Sefur þú nokkuð í nærfötum?

Sefur þú í nærfötum? Liggja þau þétt að líkamanum? Ef svo er þá er kannski rétt að breyta til. Sérfræðingar segja að best sé að sofa án nærfata, sérstaklega ef þau falla þétt að líkamanum.
Sefur þú nokkuð í nærfötum?

Sefur þú í nærfötum? Liggja þau þétt að líkamanum? Ef svo er þá er kannski rétt að breyta til. Sérfræðingar segja að best sé að sofa án nærfata, sérstaklega ef þau falla þétt að líkamanum.

Þetta kemur fram í umfjöllun Huffington Post um málið. Alyssa Dweck, læknir og rithöfundur, sagðist oft biðja sjúklinga sína að sofa án nærfata. Ef fólk sofi án nærfata þá nái loft betur að leika um kynfærin og þannig dragi úr líkunum á að sveppir geti myndast.

Ef fólk sofi í nærfötum sé best að þau séu úr bómull því andar betur en önnur efni. Dweck sagði að ef kynfærin séu ávallt hulin, sérstaklega af efni sem ekki andar, þá myndist þar kjöraðstæður fyrir sveppamyndun.

Raquel B. Dardik, kvensjúkdómalæknir, sagði að konur á breytingaskeiði eigi sérstaklega að reyna að forðast í nærbuxum og þá sérstaklega þær sem þjást af nætursvita.

Brian Steixner, þvagfærafræðingur, sagði í samtali við Men‘s Health að karlar eigi líka að forðast að sofa í þröngum nærfatnaði. Þröngar nærbuxur haldi vel hita og raka og bakteríur njóti sín við þau skilyrði og auki líkurnar á að húðin springi og sýkingar komist í hana. Einnig geta eistun orðið of heit ef sofið er í þröngum nærbuxum og þannig getur dregið úr gæðum sæðis.