Fara í efni

Sálfræðin í golfi - frá Hreiðari Haraldssyni íþróttasálfræðiráðgjafa

Það má færa fyrir því rök að andlegur styrkur sé hvergi eins mikilvægur og í golfi.
Sálfræðin í golfi - frá Hreiðari Haraldssyni íþróttasálfræðiráðgjafa

Það má færa fyrir því rök að andlegur styrkur sé hvergi eins mikilvægur og í golfi.

Margar íþróttagreinar eru þess eðlis að hægt er að bjarga sinni frammistöðu með því að berjast nægilega mikið, hlaupa nægilega mikið og setja nægilega mikinn kraft í sinn leik.

Þetta eru hlutir sem þurfa ekki að krefjast mjög mikillar einbeitingar.

Ég tek það fram að með þessu er ég ekki að segja að einbeiting sé ekki nauðsynleg í öllum íþróttum, því það er hún. Það sem ég á við er að í ákveðnum íþróttagreinum getur íþróttamaður sem finnur sig ekki einbeittan bjargað sinni frammistöðu með því að leggja aukinn kraft í sinn leik. Þetta getur golfari ekki gert. Golfari sem finnur sig missa einbeitingu verður að búa yfir þeim andlega styrk að geta náð upp einbeitingu aftur, að öðrum kosti fer frammistaðan út um gluggan.

Annað sem gerir andlegan styrk sérlega mikilvægan fyrir golfara er sú staðreynd að golfhringur getur tekið langan tíma og í fáum íþróttagreinum hefur íþróttamaðurinn eins mikinn tíma til að velta sér upp úr hugsunum sínum og í golfi. Þá er andlegur styrkur gríðarlega mikilvægur. Það er á þeim tímapunkti, þegar íþróttamaðurinn fær tíma til að beina athyglinni að hugsunum sínum, sem hann er í mestri hættu á að sökkva sér ofan í tilteknar hugsanir og leyfa þeim að ná stjórn á sér. Þá hefur íþróttamaðurinn tapað einbeitingunni.

Í golfi er mikill tími sem fer í að ganga á milli högga og þá skiptir öllu máli að golfarinn viti hvernig eigi að nálgast hugsanir sínar og hafi þann andlega styrk sem þarf til að halda athyglinni á sínu leikskipulagi en að sökkva sér ekki ofan í hugsanir ótengdu því.

Loks er innri ró sérlega mikilvæg golfurum. Þegar íþróttafólk finnur fyrir pressu og mikið er undir bregst líkaminn gjarnan við með aukinni virkni. Vöðvar spennast, púlsinn hækkar og hjartsláttur eykst. Tæknileg atriði golfíþróttarinnar . . . LESA MEIRA 

 

Af síðu andlegurstyrkur.wordpress.com