Fara í efni

Sætkartöflu og spínatbaka með heilhveiti botni

Ljúffeng baka.
Sætkartöflu og spínatbaka með heilhveiti botni

Hér er frábær uppskrift af ljúffengri böku. 

 

Hráefni:

væn smjörklípa 

2/4 blaðlaukur

1/2 meðalstór rauðlaukur

1 hvítlauksrif 

1 stór gulrót

1/2 sæt kartafla

1 meðalstór rauð paprika

6 - 7 sveppir 

spínat, magn eftir smekk

fersk steinselja, smátt söxuð

rifinn ostur 

1 tómatur 

salt og nýmalaður

Aðferð: 

  1. Hitið smjör á pönnu,
  2. Skerið rauðlaukinn, hvítlaukinn og blaðlaukinn smátt niður, steikið í smá stund.
  3. Skerið allt grænmetið fremur smátt. Bætið kartöflu og gulrót saman við laukana á pönnunni, leyfið því að malla á pönnunni í 3 - 4 mínútur. Kryddið til með ferskri steinselju, salti og pipar. Bætið því næst restinni saman við og blandið vel saman. Ég læt svolítið vel af spínati en það er auðvitað smekksatriði. Leyfið þessu að malla við vægan hita í nokkrar mínútur. Á meðan að grænmetisblandan er að malla á pönnunni þá snúum við okkur að deiginu. 

 Botn:

Deig:

125 g smjör

2 bollar KORNAX heilhveiti (bollarnir sem ég nota eru 240 ml)

2 msk ískalt vatn 

1 eggjarauða

salt og pipar 

Aðferð:

Skerið smjörið í litla teninga, blandið smjörinu, hveitinu og saltinu saman með höndunum í skál. Bætið síðan vatninu saman við smám saman. Smjörið þarf að blandast vel saman við hveitið, svo þetta tekur nokkrar mínútur. Sláið deiginu upp í myndarlega kúlu , setjið plastfilmu utan um og geymið í kæli í lágmark 30 mínútur.

Eftir 30 mínútur er deigið tilbúið, takið deigið út úr ísskápnum og fletjið út. Smyrjið bökunarform og setjið deigið í formið. Potið nokkrum sinnum í deigið með gaffli og bakið við 180°C í 8 - 10 mínútur. 

Eggjablandan:

4 stór egg

2 msk kotasæla 

smá mjólk

salt og nýmalaður pipar

Aðferð:

Pískið eggin léttilega saman við mjólkina, bætið kotasælu saman við og kryddið til með salti og pipar. Hellið eggjablöndunni yfir bökuna. Rífið niður ost og sáldrið yfir, skerið einn tómat og raðið nokkrum sneiðum ofan á ostinn. Bakið við 180°C í 30 - 35 mínútur. 

Kælið bökuna vel áður en þið berið hana fram. Mér finnst best að bera hana fram með fersku salati og léttri sósu. Þessi baka er fyrir fjóra til fimm manns myndi ég halda, það er líka mjög þægilegt að frysta nokkrar sneiðar og eiga þegar að maður er ekki í miklu stuði til þess að elda. Þessi baka er af einföldustu gerð og bragðast mjög vel, tilvalið að bera hana fram t.d. í brönsboðum og bæta þá beikoni saman við. Prófið ykkur endilega áfram með þessa uppskrift, það hefur tekið mig svolítið langan tíma að búa til hina "fullkomnu" böku að mínu mati, þessi baka kemst frekar nálægt því og er sú besta sem ég hef prófað.

Fengið af vef evalaufeykjaran.com