Fara í efni

Rófu salat með fíkjum, heilhveitipasta og tígrisrækjum

Fíkjur, heilhveitipasta og tígrisrækjur. Við mælum með að þið prufið þetta.
Rófu salat með fíkjum, heilhveitipasta og tígrisrækjum

Skemmtileg blanda í þessu salati.

Fíkjur, heilhveitipasta og tígrisrækjur. Við mælum með að þið prufið þetta.

 

Þessi uppskrift er fyrir 4

 

 

 

 

 

Hráefni: 

2 stk rófur, litlar (u.þ.b. 600 g)

3 msk olífuolía

40 ml balsamic edik        

1 msk hunang                   

12 stk vorlaukur

1 stk rauður chilli

6 stk fíkjur

200 g tígrisrækjur

200 g penne pasta (heilhveiti)

Maldon sjávarsalt og pipar

Aðferð:

Skolið rófur vel og skerið úr þeim allar skemmdir. Skerið þær í báta, með hýðinu á, og veltið upp úr olíunni.  Kryddið með salti og pipar, bakið í 20 mínútur við 200°C og kælið síðan.

Balsamic edikið og hunangið er soðið saman í sýróp, það er síðan kælt.

Vorlaukurinn er saxaður fínt, chillíið skorið í þunnar sneiðar og fíkjurnar í litla báta

Tígrisrækjurnar eru snögg steiktar á pönnu og pastað soðið í saltvatni í um það bil 15 mínútur.

Raðið rófunum, rækjunum, fíkjunum og pastanu á diskana og stráið vorlauknum, chillíinu og sjávarsaltinu yfir, hellið að lokum balsamic sýrópinu yfir salatið.

Höfundar uppskriftar eru:

Steinn Óskar Sigurðsson, matreiðslumaður og liðsmaður í kokkalandsliðinu og

Fríða Rún Þórðardóttir, næringarfræðingur.