Fara í efni

Piparkökudrykkurinn sem kemur þér í form og jólastuð

Það líkist ekkert á við góðan drykk sem bæði lyktar og bragðast eins og jólin og þú veist að þú getur drukkið með góðri samvisku. Hér kemur piparkökubústinn sem styður við þyngdartap, orku og kemur jafnvægi á kræsingar og konfekt áti sem tilheyrir svo oft hátíðunum.
Piparkökudrykkurinn sem kemur þér í form og jólastuð

Það jafnast ekkert á við góðan drykk sem bæði lyktar og bragðast eins og jólin og þú veist að þú getur drukkið með góðri samvisku.

Hér kemur piparkökubústinn sem styður við þyngdartap, orku og kemur jafnvægi á kræsingar og konfekt áti sem tilheyrir svo oft hátíðunum.

Ef þú varst svo ekki búin að næla þér jólagjöfina frá mér með einn hlut til að gera fyrir heilsu þína í 10 mín á dag í skemmtilegu dagatali frá mér, Náðu í hana hér á meðan þú getur

Ég verð að játa að ég er ekkert sérstaklega hrifin af piparkökum en þessi dásamlegi piparkökubúst finnst mér æðislegur. 

Þessi dásamlegi boost gefur öll þau góðu brögð sem piparkökur innihalda, og tryggir að þú komist í jólaskapið. Til viðbótar við bragðið gefur hann líka góða næringu.

Kanil hjálpar til við að stjórna blóðsykri og getur unnið gegn sveppasýkingum og bakteríumyndun í líkamanum. Hann hjálpar einnig til gegn uppþembu og styður við losun á kviðfitu.

Engifer hjálpar meltingunni og hjálpar til gegn bólgum í líkamanum. Það eru fleiri frábær innihaldsefni í drykknum eins og kardimommur, sem er frábært fyrir hreinsun líkamans.

Kókosmjólkin í uppskriftinni getur einni stutt við þyngdartap þar sem uppbygging kókoshnetunnar gerir okkur auðveldara fyrir að brenna henni í orku. Einnig er kókosmjólkin góð fyrir meltingu og hjálpar okkur að upplifa orku og seddu yfir daginn. (samkvæmt eatingwell og bbcgoodfood).

gingerbread-smoothie1

Piparköku bústinn fyrir þyngdartap 

    1 dós kókosmjólk

    2 msk möndlusmjör

    ¼ tsk kanil

    ¼ tsk engiferkrydd

    2-4 dropar steiva eða  1 tsp hlynsíróp/hunang/agave/

    ¼ tsk múskat

    ¼ tsk muldar kardimommur

    1 bolla ísmolar

    ½ frosinn banani

1. Setjið allt í blandara og hrærið þar til vel sameinað. Neytið sem búst eða í skál með skeið. Neytið um strax fyrir jólaskap og hlýju.

Kæra vínkona ég kveð þig að sinni og bíð þér gleðilegrar hátíðar, það hefur verið sannur heiður að fá að skrifa til þín á árinu.

Jólaknús heilsa og hamingja,

Júlía heilsumarkþjálfi

Og Lifðu til fulls teymið.

p.s Þú getur enn sótt jólagjöfina frá mér hér, með daglegum skrefum að þyngdartapi og orku. Áætlunin gefur þér skref að betri lífsstíl, mataræði og hreyfingu og tekur aðeins 10 mín á dag. (Hún fæst ókeypis með skráningu hér.)