Fara í efni

MariCell sefar viðkvæma húð

MariCell sefar viðkvæma húð

MariCell™ XMA er einstaklega virkt krem sem er sérþróað til meðhöndlunar á aumri, rauðri og bólginni húð og einkennum exems. Kremið inniheldur mOmega3™ fjölómettaðar fitusýrur og byggir á íslenskri einkaleyfavarinni tækni.

Húðlæknirinn Baldur Tumi Baldursson stendur að baki MariCell kremunum sem fást í nokkrum
mismunandi gerðum en vinnan við þau hófst fyrir um tíu árum. „Það hefur lengi þótt freistandi að
nota Omega 3 fitusýrur í meðferð við hinum ýmsu sjúkdómum og þá sérstaklega húðsjúkdómum.
Áhrif þeirra eru mjög góð á húðina en lyktin hefur staðið mönnum fyrir þrifum, enda eru fitusýrurnar
unnar úr fiskiroði og öðru sjávarfangi. Við hittum hins vegar á mjög góða blöndu sem hefur virkni án
þess að lyktin trufli,“ segir Baldur Tumi.
 
Kremið heitir XMA og er það krem í MariCell línunni sem er fyrir hvað viðkvæmasta húð. Eina virka
efnið í því eru Omega 3 fitusýrur.
 
 
 

Kremið hefur eftirfarandi eiginleika:

• Slakar á húðinni og eykur fyllingu
• Meðhöndlar auma, rauða og bólgna húð
• Dregur úr kláða
• Sefar húð
 
Baldur Tumi segir marga þekkja kosti þess að taka inn Omega 3 fitusýrur í töfluformi en að áhrif þess
séu þó ekki ýkja mikil út í húðina. „Séu þær hins vegar bornar beint á erfið svæði margfaldast áhrifin,
jafnvel þó styrkur þeirra í kreminu sé ekki yfirþyrmandi,“ útskýrir Baldur. Hann segir nauðsynlegt að
setja virk efni í krem eigi þau að virka og að menn hafi lengi vitað að Omega 3 hefði góð áhrif á
húðina.
 

En hvernig þá?

„Efsta lag húðarinnar (hyrnislag) er búið til úr 15–20 lögum af frumum. Neðstu frumur húðarinnar eru
lifandi, en eftir því sem ofar dregur þorna þær, deyja og mynda hyrnislag. Á milli þurru frumnanna er
fylliefni, sem er ríkt af fitusýrum. Fitusýrurnar halda hyrnislaginu mjúku og vatnsheldu. Undir
ákveðnum kringumstæðum rýrnar fylliefnið þannig að hyrnislagið opnast sem veldur því að húðin
bólgnar og verður þrútin, rauð og þurr.
 
Bólguviðbrögð húðarinnar stafa meðal annars af auknu gegndræpi húðarinnar sem veldur því að ertandi
efni komast inn í hana. Of mikið gegndræpi veldu þvi einnig að húðin missir raka og verður þurr, en þá
getur verið nauðsynlegt að bera á hana.“
Baldur segir ánægjulegt hve mörgum gagnast XMA kremið en dæmi eru um að exemsjúklingar geti
dregið talsvert úr sterakremum með notkun þess. „Þetta er svolítið eins og að sleppa barninu sínu
lausu út í lífið og gaman að sjá að því vegnar vel.“
 
Önnur krem í MariCell línunni eru með fleiri virkum efnum en XMA sem er sem fyrr segir fyrir þá
viðkvæmustu. Í þeim eru ávaxtasýrur og karbamíð í mismunandi styrk. Footguard er fyrir sprungana
hæla og fótasigg, Psoria fyrir þykka og hreistraða húð með kláða og Smooth fyrir hárnabba,
rakstursbólur og inngróin hár og er hlutfallslega mest af virkum efnum í því.
 
FYRIR
 
EFTIR
 
 

Vörurnar fást í apótekum.

Friðbert Elí Friðbertsson hefur glímt við exem frá eins og hálfs árs aldri. „Ég hef prófað öll möguleg
krem í gegnum tíðina en XMA kremið frá MariCell virkar langbest á mig af þeim ólyfseðilskyldu
kremum án stera sem ég hef prófað.“ Friðbert byrjaði að nota kremið fyrir tæpu ári og hefur notað
það á hverjum degi síðan. Exemið er að hans sögn hvað útbreiddast á höndum og andliti og hefur
hann hingað til ekki fundið krem sem er jafn rakagefandi og mýkir húðina jafn vel. Friðbert er 36 ára í
dag og ánægður með að hafa loks fundið krem sem virkar. „Það gerir það líka að verkum að ég get
látið líða lengra á milli sterakúra en þá þarf ég yfirleitt að taka þegar verða miklar hitabreytingar í
veðri. XMA-kremið heldur mér hins vegar góðum á milli.“