Fara í efni

Ofnbakaður lax í teriyaki marineringu með fullt af grænmeti

Ofnbakaður lax í teriyaki marineringu með fullt af grænmeti

Frábær lax að asískum hætti.

 

Hráefni:

700 g roðflettur lax

½ flaska Blue Dragon Teriyaki marinering

1 msk hunang

1 hvítlauksrif

1 stk meðal zucchini

1 paprika

½ meðal stór brokkolí haus

100 g sætir bauna belgir (sugar snap peas)

200 g brún hrísgrjón

1 dós Blue Dragon kókosmjólk

100 ml vatn

Klípa af salti

1 dl sesam fræ

Leiðbeiningar:

1. Kveikið á ofninum og stillið á 200ºC. Marinerið laxinn í Blue Dragon teriyaki marineringu í 5 mín. Penslið 1 msk hunangi yfir laxinn og rífið hvítlauk yfir. Skerið grænmetið niður og setjið ofan í mótið með laxinum og marineringunni, veltið öllu svolítið saman. Setjið inn í ofn og bakið í u.þ.b. 25 mín eða þar til laxinn er bakaður í gegn.

2. Setjið hrísgrjónin í pott ásamt kókosmjólkinni, vatni og smá salti. Sjóðið með lokinu á þar til hrísgrjónin eru tilbúin og vökvinn hefur gufað upp.

3. Ristið sesam fræ á heitri pönnu með því að setja þau á heita pönnuna í u.þ.b. 2-3 mín og hræra reglulega í. Dreifið yfir fiskinn þegar hann er tilbúinn.