Fara í efni

NÝTT: Dásamlegar bakaðar kúrbítsfranskar með parmesan – KETO

NÝTT: Dásamlegar bakaðar kúrbítsfranskar með parmesan – KETO

Þessar eru alveg æðislega góðar og fljótlegar að gera. Þær henta einnig þeim sem eru á KETO mataræðinu.

Uppskift er fyrir 6.

Hráefni:

3. meðal stórir kúrbítar

½ bolli af ferskum rifnum parmesan

1 tsk af þurrkuðum kryddjurtu – thyme, oregano, basil, rosemary . . .

½ tsk af reyktri papriku í kryddformi – smoked paprika

½ tsk af hvítlauksdufti

Gróft salt eftir smekk

Svartur pipar eftir smekk

2 msk af ólífuolíu

3 msk af ferskri steinselju – saxa laufin

Leiðbeiningar:

Forhitið ofninn í 240 gráður og hyljið bökunarplötu með smjörpappír eða álpappír. Berið á pappírinn svo franskarnar festist ekki við hann.

Takið nú skál og blandið saman parmesan, kryddinu, paprikunni og hvítlauksdufti, ásamt salti og pipar eftir smekk.

Setjið niðurskorin kúrbítinn í zip lock poka og hellið olíunni í pokann og hristið vel saman. Takið svo hvern bita fyrir sig og rúllið upp úr kryddblöndunni.

Það er æðislegt að setja aukalega parmesan yfir allt áður en þú setur kúrbítinn inn í ofninn.

Látið svo bakast þar til bitarnir eru stökkir, tekur um 15 mínútur. Passið bara að þeir brenni ekki.

Hækkið svo hitann og látið bakast þar til bitar eru gylltir eða í 2-3 mínútur í viðbót.

Skreytið með steinselju og berið fram heitt.

Njótið vel!

Smelltu HÉR til að sjá myndbandið.