Fara í efni

Nokkrar áhugaverðar staðreyndir um smokkinn

Þrátt fyrir nýjar uppfinningar þegar kemur að getnaðarvörnum þá er smokkurinn ávallt afar vinsæll.
Nokkrar áhugaverðar staðreyndir um smokkinn

Þrátt fyrir nýjar uppfinningar þegar kemur að getnaðarvörnum þá er smokkurinn ávallt afar vinsæll.

Hann er öruggur, einfaldur í notkun og kemur í veg fyrir smit á kynsjúkdómum.

Það er kannski ekkert ofsalega sexy að nota smokkinn en það er ástæða fyrir því að hann er lang vinsælasta og algengasta getnaðarvörnin – smokkurinn er jú einfaldur, öruggur, ódýr og þeir virka. Og þó að allskyns nýjar getnaðarvarnir líti dagsins ljós þá þarf að bera virðingu fyrir smokknum. Hann mun jú eflaust alltaf vera á toppnum, einfaldur að nálgast og ver þig gegn kynsjúkdómum.

Hér að neðan eru skemmtilegar staðreyndir um smokkinn sem þú kannski vissir ekki:

Þegar það kemur að HIV, þá er smokkurinn 10 þúsund sinnum öruggari til að koma í veg fyrir smit við kynmök en nokkur önnur getnaðarvörn.

Smokkar hafa verið til í þúsundir ára. Í helli einum í Frakklandi fundust teikningar á veggjum og má þar finna elstu teikningu af smokki sem vitað er um, en þessi teikning er á bilinu 12 – 15 þúsund ára gömul.

Þegar smokkur er notaður rétt þá er hann 98% öruggur til að koma í veg fyrir getnað.

Aðeins 35% af framhaldsskólakrökkum í Bandaríkjunum er kennt að nota smokkinn.

Ef smokkurinn bregst þér þá ertu ekki að nota hann rétt. Ekki setja hann á og taka af aftur og setja aftur á. Ekki setja hann á of seint og ekki opna pakkann með oddhvössu áhaldi. Og alls ekki nota sleipiefni sem inniheldur olíu.

86% þeirra sem nota smokkinn nota ávallt sitt uppáhalds merki. Það er undantekning ef breytt er um tegund.

Mörgum líkar smokkurinn illa. Aðeins um 5% af karlmnönnum í heiminum nota smokkinn.

Það hafa verið gerðar litlar breytingar á smokknum í gegnum árin. Þessi upprúllaði í litlu pökkunum kom á markað á þriðja áratug síðustu aldar og aðeins örlitlar breytingar hafa verið gerðar á honum síðan.

45% karlmanna og 63% kvenfólks sem ætlar að stunda kynmök í fyrsta sinn með manneskju sem þau þekkja lítið til segjast ekki nota smokkinn.

Fyrstu smokkarnir voru gerðir úr þarma eða garna veggjum af inniflum dýra. Pylsugerðarmenn í Evrópu seldu oft smokka undir borðið.

Lífstími smokksins eftir að honum hefur verið pakkað, eru um fjögur ár ef hann er geymdur á köldum, þurrum stað.

Konur kaupa um 40% af seldum smokkum í Bandaríkjunum.

Danska orðið yfir smokk er svangerskabsforebyggendemiddel. Já, í alvöru. En sem betur fer er notað orðið gummimand yfir smokkinn. En gummimand þýðist sem gúmmíkallinn á íslensku.

Stærsti smokkur í heimi er 260 fet og 360 fet í ummál.

Að nota smokkinn getur hjálpað til við að halda réttri bakteríuflóru í leggöngum kvenna og dregur þannig úr kláða og minniháttar sýkingum.

Stærsti framleiðandi smokka í heimi er Karex Industries sem er með höfuðstöðvar í Malasíu.

Heimild: kinkly.com