Fara í efni

Myntu kókos kaka með súkkulaðikremi - Hver þarf „After eight” þegar þú hefur þessa!

Geggjuð uppskrift.
Myntu kókos kaka með súkkulaðikremi - Hver þarf „After eight” þegar þú hefur þessa!

Hver þarf „After eight” þegar þú hefur þessa ?

 

Notað: matvinnsluvél og blandari

Botninn:

2 bollar möndlur og valhnetur (sem lagðar hafa verið í bleyti í amk 4 klukkutíma)

1 1/2 bolli mjúkar döðlur eða hunang

1/2 bolli kakóduft

1 tsk vanilludropar

Smá salt 1.

Byrjaðu á því að setja hneturnar í matvinnsluvél og malaðu í um 8 sek passaðu bara að blanda ekki of lengi því annars gæti blandan orðið olíukennd

2.Bættu döðlunum útí (ein í einu með vélina í gangi)

3. Bættu restinni af uppskriftinni útí og blandaðu saman (deigið ætti að festast saman þegar þú kremur það milli tveggja fingra)

4. Pressaðu deiginu í form, svo að botninn verði um 1 1/2 - 2 cm þykkur.

Kasjúfyllingin:

1 bolli kasjúhnetur sem lagðar hafa verið í bleyti í amk 2 klukkustundir

1 bolli möndlumjólk (Keypt eða heimatilbúin, sjá uppskrift neðst)

1/4 bolli agave sýróp

3/4 bollar kókosolía (hituð í vatnsbaði)

4 tsk vanillu dropar

1/4 bolli luccuma duft

2 msk lecithin (Lecithin gefur fyllinguna og er auk þess góð fyrir minnið)

1. Settu kasjúhneturnar, mjólkina, agave sýrópið og dropana í kröftugan blandara og blandaðu mjög vel ( í um 30-60 sek)

2. Bættu restinni af uppskriftinni útí og blandaðu þar til blandan er orðin silkimjúk

3. Helltu fyllingunni yfir botnin og settu inní frysti í um 1 klukkustund til að fá stífa köku svo þú getir sett mintukremið á kökuna.

Mintu kókoskremið:

1 1/2 bolli dökkt agave sýróp

1 1/2 bolli kakóduft

2/3 bollar kókosolía (hituð í vatnsbaði/bráðin)

1/2 tsk pipparmintudropar 1/2 bolli fínmalað kókosmjöl

Smá salt

1. Settu allt í blandara og blandaðu vel saman (blandan gæti orðið svolítið stíf, hrærðu inná milli með skeið)

2. Taktu kökuna út út frystinum og settu kremið á kökuna

3. Gaman er að skreita kökuna með kókosmjöli

4. Settu kökuna inní frysti aftur í amk 1 klukkustund (það er hægt að geyma kökuna inni í frysti í allt að 3 vikur)

Möndlumjólkin (val):

1 bolli möndlur (sem lagðar hafa í bleyti í um 8 klukkustundir)

5 bollar vatn

2 döðlur eða 1 msk agave sýróp

1 tsk vanilludropar eða hnífsoddur vanilluduft

1. Allt sett í blandara og blandað vel í um 2-3 mín.

2. Hellt í gegnum spírupoka eða sigti og hún er tilbúin Ath: Ef þið kjósið að kaupa möndlumjólkina út út búð er það í fínu lagi líka.

 

Uppskriftin er frá rafbók Júlía Magnúsdóttir "Sektarlaus sætindi fyrir mjórra mitti" sem má sækja ókeypis hér:

(lifdutilfulls.leadpages.net/sektarlaus-skraning ) . 

Júlía Magnúsdóttir er næringar- og lífsstílsráðgjafi  og  stofnandi Lifðu Til fulls heilsumakrþjálfun sem hjálpar einstaklingum að léttast, auka orku og lifa með sátt í sínu skinni með hennar sannprófuðu 5 daga matarhreinsun (http://lifdutilfulls.is/okeypis-kennslusimtal/webinar-register.php? ) , ókeypis sykurlausa áskorun sem hún heldur , lífstíllsþjálfun og heilsubloggi (http://lifdutilfulls.is/blogg/ )