Fara í efni

Missum tilfinningu fyrir þorsta með aldrinum

Það er ýmislegt sem breytist varðandi næringu þegar fólk eldist. Matarlyst minnkar til dæmis og menn skynja þorsta á annan hátt en áður.
Gott er að eiga ávallt flösku af vatni í ísskápnum
Gott er að eiga ávallt flösku af vatni í ísskápnum

Það er ýmislegt sem breytist varðandi næringu þegar fólk eldist.

Matarlyst minnkar til dæmis og menn skynja þorsta á annan hátt en áður.

Erla Sveinsdóttir læknir og fagstjóri heilbrigðisþjónustu í Heilsuborg segir að líkaminn segi þannig ekki lengur til um hvenær menn þurfi að drekka. Líkaminn þarf hins vegar jafn mikinn vökva og áður.

Erla segir að það sé mjög algengt að þeir sem eldri eru, þurfi að minna sig á að drekka og þá sé gott ráð að setja flösku með vatni í ísskápinn og hafa þannig alltaf tiltækt vatn til að drekka. Hún segir að menn þurfi að drekka tvo lítra á dag.

Erla segir að það sé gott að drekka 3-4 glös af vatni og tvö glös af fitulítilli mjólk. Þá drekki menn líka kaffi og te, en í þeim drykkjum séu hins vegar efni . . . LESA MEIRA