Fara í efni

Mígreni eða slæmur höfuðverkur ? Slepptu því að borða þetta

Mígreni orsakast af ákveðnum breytingum í heila. Fólk sem þjáist af mígreni getur verið viðkvæmt fyrir ákveðnum mat, sterku ilmvatni og jafnvel ljósi.
Mígreni eða slæmur höfuðverkur ? Slepptu því að borða þetta

Mígreni orsakast af ákveðnum breytingum í heila. Fólk sem þjáist af mígreni getur verið viðkvæmt fyrir ákveðnum mat, sterku ilmvatni og jafnvel ljósi.

Breytingar á veðri og aðrar breytingar á umhverfi geta einnig verið orsakavaldur mígrenis og höfuðverkjar.

 

 

Kíktu yfir listann hér að neðan því þar er að finna mat sem getur orsakað mígreni og slæman höfuðverk.

1. Súkkulaði

Þriðjungur þeirra sem þurfa að eiga við slæman höfuðverk ættu að hætta í súkkulaðinu. Margir sem þjást af mígreni fá aukna matarlyst rétt fyrir mígrenikast og þá langar þeim í eitthvað sætt, frekar en eitthvað hollt og oft er það súkkulaði sem verður fyrir valinu. Og það er sko aldeilis engin lausn á vandanum. Alls ekki fá þér súkkulaði ef þú finnur fyrir höfuðverk, gerðu tilraun og sjáðu hvort það virkar.

2. Ostur

Tyramine er efni sem er náttúrulegt í sumum mat og verður til þegar próteinið í mat sem þú geymir leysist upp. Sem þýðir að þeim mun lengur sem þú geymir mat þeim mun meira af tyramine er í honum.

Magnið af tyramine í osti fer eftir því hversu mikið unnin hann er.

3. Áfengi

Og skal engan undra. Áfengi eykur blóðflæði til heila. Rauðvín, bjór, viskí og kampavín eru þekktar tegundir áfengis sem kveikja á höfuðverk. Þó svo þetta sé uppáhalds áfengið þitt þá ættir þú að reyna að forðast það.

4. Kaldur matur

Ef þú varst að koma af æfingu eða hefur verið úti í sólinni þá er mjög líklegt að þú teygir þig eftir einhverju köldu til að svala þorsta. Þetta getur gert það að verkum að þú finnur fyrir slæmum verk í enni sem getur staðið yfir í nokkrar sekúndur og upp í nokkrar mínútur.

5. Nítrat

Unnin matur eins og pylsur, salami eða pepperoni innihalda nítrat og hefur það verið þekkt að valda höfuðverk. Nítrat er í flestum unnum mat.

6. Tannín

Te, rauð epli eða perur, epla safi og rauðvín innihalda tannín. Tannín getur orsakað höfuðverk hjá sumu fólki.

7. Ávextir og grænmeti

Þó svo að ávextir og grænmeti sé hollustufæði þá getur það einnig orsakað höfuðverk. Ef þú færð oft mígreni ættir þú að passa upp á hvaða ávexti þú borðar. Slepptu t.d rúsínum. Papaya, bönunum, avókadó og fíkjum. Varðandi grænmetið þá er mælt með að sleppa baunum, lauk og hráum hvítlauk.

8. Brauð

Sumar tegundir af brauði sem gerðar eru úr súrdeigi, gerbrauð, sætabrauð og pizza geta ollið höfuðverk eða mígreni kasti. Best er að sleppa öllu kexi líka.

9. Koffein

Sumir komast ekki í gang á morgnana nema fá sinn skammt af koffeini, en það spá ekki margir í því að koffeinið gæti verið að orsaka höfuðverk eða jafnvel mígreni. Ef þú verður að fá þinn koffein skammt reyndu að halda þig við einn bolla á dag.

Heimild: healtandhealtyliving.com