Fara í efni

Mexíkóskar morgunverðarvefjur með eggjahræru

Flott í morgunverðinn.
Mexíkóskar morgunverðarvefjur með eggjahræru

Tilvalið í morgunmatinn. 

Innihald:

4 stk. egg
4 msk. rjómi
salt og pipar
2 stk. tómatar, fræhreinsaðir og skornir í litla bita
2 stk. vorlaukar, smátt saxaðir (2-3 stk.)
1 msk. smjör
1 dl rifinn ostur
heilhveitivefjur, salsasósa, sýrður rjómi og grænt salat

Aðferð:

Þessi uppskrift dugar fyrir tvær vefjur, sem duga fyrir 2-4 manns. Upplagt í morgunverð eða sem nesti í göngu- eða skíðaferðina.

Pískið eggin, með mjólk, salti og pipar eftir smekk og bætið grænmetinu saman við.

Bræðið smjör á pönnu við vægan eða meðalhita og hellið eggjahrærunni út á.

Steikið eggin þar til næstum elduð í gegn.

Bætið þá ostinum út á pönnuna og hrærið saman þar til osturinn er bráðnaður og eggin elduð.

Takið af hitanum. Galdurinn við góð hrærð egg er að elda þau hægt og rólega við vægan hita.

Leggið salatblað á heilveitivefju, smyrjið dálitlum sýrðum rjóma og salsasósu ofan á og setjið svo helminginn af eggjahrærunni innan í.

Vefjið þétt upp og skerið í tvennt eða borðið í heilu lagi. 

Höfundur: Helena Gunnarsdóttir

af vef gott í matinn