Fara í efni

Leiðir til að byggja upp vöðva og móta líkamann

Ef þú vilt fá vöðva án þess að líta út eins og vöðvatröll þá er það vel hægt. Það eru margir frábærir kostir þess að byggja upp vöðva.
Leiðir til að byggja upp vöðva og móta líkamann

Ef þú vilt fá vöðva án þess að líta út eins og vöðvatröll þá er það vel hægt. Það eru margir frábærir kostir þess að byggja upp vöðva.

Það hjálpar þér að hraða á efnaskiptum, minnkar líkur á beinþynningu, þú brennir fitu og missir kíló og að sjálfsögðu lagar líkamslögun þína og eykur styrk.

Það getur stundum verið erfitt að fá vöðva jafnvel þó þú sért dugleg í ræktinni og æfir af hörku. Hér eru nokkur ráð sem ættu að hjálpa til.

 

 

 

 

1. Lyftu lóðum

Mikilvægt samt að lyfta ekki of þungu. Æfðu oft í viku með lóðum, gerðu margar endurtekningar en ekki of þungt. Passaðu þig samt á að eftir reglulegar æfingar í 3-4 vikur með lóðum þá er hægt að þyngja örlítið eftir föngum.

2. Styrktar æfingar

Jóga, body pump, tabata, stöðvaþjálfun og ýmiskonar önnur þjálfun hjálpar þér að byggja upp vöðva. Þess konar æfingar eru góð forvörn gegn beinþynningu og tóna þig til. Einnig hjálpa þær til við að ná upp styrk og liðleika. Mættu reglulega nokkrum sinnum í viku í slíka þjálfun.

3. Brennsla fyrir lyftingar

Ef þú ert að reyna að grenna þig þá er mælt með því að brenna eftir styrktaræfingar en ef þig langar að byggja upp vöðva þá ættir þú að brenna fyrst og lyfta svo. Brennsluæfingar brjóta nefninlega niður vöðvaþræði og því erfiðara að byggja upp vöðva ef þú brennir alltaf á eftir.

 

Smelltu HÉR til að lesa þessa grein til enda af vef sykur.is