Fara í efni

Kjúklingakebab

Einstaklega gott.
Rosalega flottur og þægilegur réttur.
Rosalega flottur og þægilegur réttur.

Alveg einstaklega gott kebab og svo tilvalið að skella því á grillið í kvöld. 

Hráefni:

400 g bein og skinnlausar kjúklingabringur
1 rauð paprika
1 græn paprika
1 rauðlaukur
200 g niðursoðnir tómatar
1 tsk þurrkað óreganó
1/2 tsk þurrkað rósmarín
1/2 tsk svartur pipar
1/2 tsk jurtasalt
1 tsk appelsínubörkur
1/2 tsk kanill
4 bökunarkartöflur
4 msk sýrður rjómi (10%)
ferskar kryddjurtir

Aðferð:

Byrjið á að baka kartöflurnar. Þær bakast eða grillast á klukkutíma.
Skerið kjúklingabringurnar í ferninga. Skolið og hreinsið kjarna úr paprikum og skerið í ferninga. Skerið rauðlauk í ferninga.
Hitið tómata með óreganó, rósmaríni, pipar, jurtasalti, appelsínuberki, og kanil.

Þræðið til skiptis á grillspjót kjöt, papriku, lauk og sveppi. Penslið vel með tómatsósunni og grillið í tíu mínútur. Penslið af og til með sósunni á meðan grillað er. Gætið þess að grilla kjúklingakjötið þannig að það sé gegnum steikt.

Hrærið fersku kryddjurtirnar saman við sýrða rjómann og setjið út í bökunarkartöflurnar.

Má einnig bera fram með hrísgrjónum.