Fara í efni

Kjósið langhlaupara ársins 2015 - kynning á fleiri sem tilnefndir eru

Kíktu og kjóstu!
Kjósið langhlaupara ársins 2015 - kynning á fleiri sem tilnefndir eru

Í sjöunda skiptið stendur hlaup.is fyrir vali á langhlaupara ársins, bæði í karla- og kvennaflokki. Þá er einkum verið að horfa til afreka í götu- og utanvegahlaupum eða annarri keppni í langhlaupum.

Afrek er afstætt, getur verið góður tími miðað við aldur, óvenjulegt verkefni, þrautseigja og kjarkur eða hvaðeina sem hægt er að meta til viðurkenningar.

Samtals voru 30 hlauparar tilnefndir í karla- og kvennaflokki til langhlaupara ársins 2015. Að þessu sinni eru það 6 konur og 6 karlar sem mynda endanlegan lista hlaupara sem kjósa á um. Það val var ekki auðvelt frekar en áður, því margir af þeim hlaupurum sem tilnefndir voru, hafa hver á sinn hátt unnið góð afrek og/eða sýnt mikla þrautseigju á síðasta ári.

Valnefnd til að velja úr tilnefningum þeim sem bárust, skipa Torfi Helgi Leifsson umsjónarmaður hlaup.is, Sigurður P. Sigmundsson langhlaupari og þjálfari, Gunnar Páll Jóakimsson þjálfari og fyrrum þjálfari Skokkhóps ÍR, Erla Gunnarsdóttir fyrrum þjálfari Skokkhóps Fjölnis í Grafarvogi og Margrét Elíasdóttir þjálfari KR-skokk.

Hægt verður að kjósa til kl. 24 mánudaginn 1. febrúar 2016. Verðlaunaafhending verður fyrstu helgina í febrúar (nánari tímasetning síðar) og tilkynnt verður um niðurstöðu kosningar í kjölfarið á því hér á hlaup.is.

Allir sem kjósa fara í pott og geta unnið hlaupaskó.

Form til að kjósa langhlaupara ársins (athugið að gefa besta hlaupara 6 stig og svo koll af kolli)

 

Sigurjón Sigurbjörnsson (60 ára) lét engan bilbug á sér finna og setti Íslandsmet í flokki 60-64 ára er hann kom í mark á 2:59:29 klst í maraþoni RM í ágúst. Hann setti einnig Íslandsmet (38:48) í flokki 60-64 ára í 10 km í Adidads Boost hlaupinu í lok júlí svo og Íslandsmet í 5 km (18:42) í aldursflokki 55-59 ára í Víðavangshlaupi ÍR í apríl.

Helga Margrét Þorsteinsdóttir (24 ára) fyrrum afrekskona í sjöþraut kom mjög á óvart fyrir árangur sinn í langhlaupum á árinu en hún varð að hætta keppni í hefðbundnum frjálsíþróttagreinum fyrir nokkrum árum vegna meiðsla. Hún byrjaði á því að verða fyrst kvenna í Icelandair hlaupinu í byrjun maí og fylgdi því svo eftir með sigri í Gullsprettinum í júní. Hæst bar árangur hennar í hálfmaraþoni RM þar sem hún varð í 5.sæti og önnur íslenskra kvenna á 1:26:05 klst. Helga Margrét varð svo fyrst í Gamlárshlaupi ÍR (40:20 mín.)

Af vef hlaup.is