Fara í efni

Kínverskt nautakjöt í spicy appelsínusósu

Fljótlegt og bragðgott nautakjöt í appelsínusósu.
Kínverskt nautakjöt í spicy appelsínusósu

Fljótlegt og bragðgott nautakjöt í appelsínusósu.

 

Hráefni

700 g nautakjöt

2 tsk fínrifinn appelsínubörkur

120 ml appelsínusafi

50 g púðusykur

2 msk hrísgrjónaedik, t.d. Rice vinegar frá Blue dragon

2 msk soyasósa, t.d. Soy sauce frá Blue dragon

2 tsk chilí og hvítlaukssósa, Sweet chilí and garlic stir fry sauce frá Blue dragon

2 tsk rifið engifer

2 tsk sterkja (t.d. hveiti)

4 tsk olía til steikingar

2-3 vorlaukar, smátt skornir

Leiðbeiningar

1. Skerið kjötið í þunnar sneiðar, þerrið með eldhúspappír. Setjið til hliðar og geymið.

2. Gerið sósuna með því að hræra saman appelsínubörk, appelsínusafa, sykur, hrísgrjónaedik, soyasósu, chilí-hvítlaukssósu, engifer og sterkju í skál. Takið til hliðar og geymið.

3. Hitið 2 tsk olíu á pönnu við meðalhita. Setjið helminginn af kjötinu á pönnuna og brúnið á í um eina mínútu á hvorri hlið. Takið af pönnunni og látið í skál. Setjið nú afganginn af olíunni á pönnu og steikið afganginn af kjötinu. Takið af pönnunni og setjið í skál og geymið.

4. Setjið appelsínublönduna á pönnuna við meðalhita. Hrærið í blöndunni þar til hún hefur þykknað eða í 2-3 mínútur. Bætið þá steikinni saman við og hrærið í blöndunni. Bætið vorlauk saman við og berið fram með hrísgrjónum. Fyrir þá sem vilja láta þetta rífa aðeins í geta bætt niðurskornu chilí saman við.

Uppskrift fengin af vef gerumdaginngirnilegan.is