Fara í efni

Karlar sofa aðeins skemur og brölta meira á nóttunni

Íslenskir eldri borgarar sofa vel og lengi bæði á sumrin og veturna. Þetta er niðurstaða svefnrannsóknar sem var gerð á svefni 244 einaklingum sem allir voru um áttrætt.
Karlar sofa aðeins skemur og brölta meira á nóttunni

Íslenskir eldri borgarar sofa vel og lengi bæði á sumrin og veturna.

Þetta er niðurstaða svefnrannsóknar sem var gerð á svefni 244 einaklingum sem allir voru um áttrætt. Þar af voru 110 konur.

Rannsóknin var gerð árið 2010 og  var samstarfsverkefni nokkurra háskóla austan hafs og vestan. Hér á Íslandi tóku Hjartavernd og Háskóli Íslands þátt í henni.

Erlingur Jóhannsson prófessor í Háskóla Íslands segir að með rannsókninin hafi átt að meta áhrif dagsbirtu á svefnmynstur eldra fólks.  Þannig hafi hreyfimynstur og svefnvenjur verið skoðaðar hjá sama fólki að vetri til og svo aftur um sumar. Hreyfi- og svefnúr voru notuð í rannsókninni og er það í fyrsta sinn sem hlutlægar mælingar eru notaðar í þessum aldurshópi.

Niðurstaða sveifnmælingarinnar var að heildarsvefntími fólksins var um 8 klukkustundir á sólarhring óháð árstíma, sem er algjörlega samkvæmt alþjóða ráðleggingum um lengd svefns hjá fólki á þessum aldri.  Svefninn var að vísu 20 mínútum styttri yfir sumartímann. Annars var ekki marktækur munur á heildarsvefntíma á sumrin og veturna og heldur ekki milli karla og kvenna. Karlar sofa þó samkvæmt þessum mælingum . . . LESA MEIRA