Fara í efni

K Y N L Í F: Fjórar sjóðheitar leiðir til að krydda Trúboðann

Aldrei skyldi gera lítið úr Trúboðanum, sem er einfaldur í framkvæmd og oft talin óspennandi stelling.
K Y N L Í F: Fjórar sjóðheitar leiðir til að krydda Trúboðann

Aldrei skyldi gera lítið úr Trúboðanum, sem er einfaldur í framkvæmd og oft talin óspennandi stelling. En Trúboðann ætti enginn að vanmeta og hægt er að krydda eina þekktustu stellinguna í svefnherberginu með litlum tilfæringum, svo úr rjúki og bæði njóti í botn.

Hér á eftir fara nokkrar leiðir til að kynda undir ástríðuhitanum og gera trúboðann enn skemmtilegri:

 

#1 – Fyrir hann: Settu púða undir bossann á henni!

Einmitt. Ég sagði: Settu púða undir bossann á henni. Þrýstu púða undir bossa konunnar, hagræddu mjöðmunum og smeygðu svo limnum inn í leggöngin … hljómar freistandi, ekki satt? Púðinn lyftir bossanum og grindarbotninum upp á við og gerir konuna móttækilegri fyrir elskhuganum. Að vísu getur konan ekki hreyft mjaðmirnar jafn kröftuglega þegar púðanum hefur verið hagrætt og karlmaðurinn þarf að erfiða meira, en því ekki að prófa og það með hægari, dýpri og meira ertandi takti. Ef þú hefur aldrei prófað púða-trixið, áttu skemmtilegan leik í vændum!

#2 – Fyrir hana: Halló, sokkabönd og uppháir nælonsokkar …

Fátt er skemmtilegra en að finna til eigin kynþokka í rúminu. Er stefnumót á döfinni í kvöld? Láttu gömlu sokkabuxurnar um lönd og leið og smeygðu þér fremur í fallega nælonsokka með blúndukanti. Farðu í sokkabönd! Leyfðu þér að ganga alla leið undir fatnaðinum. Þegar í rúmið er komið … skaltu svo afklæðast öllu nema uppháum nælonsokkunum. Teygðu úr fótleggjunum, vefðu þeim utan um þjóhnappa ástmannsins, þrýstu honum að þér og njóttu.  

 

Til að lesa hinar tvær leiðirnar þá skaltu smella HÉR

Grein af vef sykur.is