Fara í efni

Íslensk útgáfa af

Frá mæðgunum.
Íslensk útgáfa af

Açai ber hafa verið mjög vinsæl síðustu ár, berin koma frá Suður-Ameríku og þykja bragðgóð og litfögur.

Undanfarið hefur verið vinsælt að útbúa açai-skálar úr açai berjamauki, nokkurskonar smoothie í skál með allskyns girnilegu ofan á. Okkur langaði að gera okkar eigin útgáfu af þessari vinsælu skál, en nota frekar ber sem vaxa nær heimahögunum. Sólber hafa verið í miklu uppáhaldi hjá okkur alveg síðan úr barnæsku, amma Hildur og afi Eiríkur voru alltaf (og eru enn) með marga sólberjarunna í sínum garði, og við fengum bæði að njóta þess að tína berin beint upp í munn og svo að njóta dásamlegu sólberjasultunnar á haustin.

Við ákváðum að prófa að útbúa sólberja-skál, sem minnir glettilega mikið á açai-skálina títtnefndu og er virkilega bragðgóð. Sólber fást frosin í stórmörkuðunum um þessar mundir, svo styttist í sumarið og þá verður nú aldeilis sólberjaveisla víða í íslenskum görðum. 

Að bera smoothie fram í skál finnst okkur góð hugmynd, því við borðum hann hægar með skeið en röri. Við tyggjum bitana og upplifum skálina frekar sem heila máltíð og fyrir vikið finnst okkur hún verða saðsamari. Svo er líka svo mikið pláss fyrir allskonar girnilegt ofan á, okkur finnst dásamlegt að strá lífrænt ræktuðum hnetum, fræjum, ávöxtum, spírum og avókadó yfir skálina til að hafa eitthvað að bíta í. Þetta gerir máltíðina mun saðsamari og skálin verður litrík og vorleg.

 

 

Uppskriftin

2 1/2 dl frosin sólber
1 banani
1/2 - 1 avókadó
1 tsk vanilluduft
1 dl kókosmjólk
(á tyllidögum má setja kókosmjólkurdósina inn í ísskáp í smá stund svo þykki hlutinn stífni, nota síðan bara þykka hlutann í uppskriftina, þá verður skálin rjómakennd).


Aðferðin

  1. Setjið kókosmjólkina, avókadó, banana og vanillu í blandara og blandið þar til silkimjúkt.
  2. Hafið blandarann í gangi, takið tappann úr lokinu og setjið sólberin ofan í nokkur í einu. Þannig nær skálin að verða alveg silkimjúk. Ef blandarinn ykkar er soldið lúinn og ræður illa við þetta er lag að setja þetta fyrst í matvinnsluvél og síðan í blandarann. Eða hafa þetta þynnra og setja síðan inn í frysti smá stund svo skálin þykkni.
  3. Setjið maukið í skál og toppið með því sem ykkur finnst best. Við notum ávexti, avókadó, hnetur og fræ, avókadó, spírur, ber og ávexti. 
 

Hugmyndir ofan á:

- heslihnetur
- kókosflögur
- hampfræ
- avókadósneiðar
- bananasneiðar
- fersk ber
- spírur
 
Uppskrift af vef maedgurnar.is