Fara í efni

Hvernig á að þekkja sykur í matvælum og góðir staðgenglar

Hvernig á að þekkja sykur í matvælum og góðir staðgenglar

Ert þú búin að vera að samviskusöm/samur í að sleppa sykri en ert samt ekki alveg viss um hvort þú sért alveg laus við sykurinn?

Ég veit það getur verið yfirþyrmandi að hugsa til þess að þurfa lesa á bak við allar umbúðir í búðinni til að skoða hvort varan innihaldi sykur. Enda getur verið erfitt að þekkja sykur þar sem hann hefur yfir 8 falin nöfn og leynist meira að segja í vörum merktum “sykurlaust”.

Góðar líkur eru á því að eitthvað af því sem þú kaupir sé fullt af sykri án þess að þú vitir af því!

Til að auðvelda þér lífið deili ég með þér vinsælum matvælum sem margir vita ekki að eru í raun full af sykri (og bragðgóða valkosti til að velja í staðinn!)

DSC_2980 small

Ávaxtasafar

Þrátt fyrir að ávextir séu náttúrulega sætir hafa þeir ekki slæm áhrif á líkamann þegar við borðum þá í heild sinni þar sem við neytum þá trefja þeirra líka. Trefjarnir gera það verkum að blóðsykurinn helst jafnari og meltist það betur.
Þegar við fjarlægjum trefjana eins og er gert í ávaxtasöfum erum við skilin eftir með eingöngu frúktósa. Við viljum forðast umframmagn af frúktósa þar sem umframmagn geymist sem fita. Ég útskýri betur Frúktósa og hvar hann má finna m.a í ókeypis net-fyrirlestri mínum hér fyrir áhugasama.
Niðurstaðan hér er sú að betra er að borða ávexti í heild sinni eða setja ávexti útí búst. Ef þú ætlar að gera þér safa að hafa í huga að hlutfall grænmetis sé mun meira en ávaxta svo blóðsykurinn haldist jafn. Jafnvel 60-80% grænmeti og rest ávextir.

DSC_3027 small

Tilbúnar sósur

Hver elskar ekki góða sósu með matnum?! Því miður eru flestar sósur fullar af sykri. Ekki örvænta þó ef þú ert tómatsósusjúk/ur því sem betur fer eru komnir margir sykurlausir og góðir valkostir.
Oft er það sem við miklum fyrir okkur tilhugsunina við að “gera sósu frá grunni” en það þarf ekki endilega að vera flóknara er að skella nokkrum hráefnum saman í blanda. Sósur og dressingar geymast líka lengi og flestar má frysta til að flýta fyrir næstu matseld.

DSC_2991 small

Dósamatur

Oft leynist mikið af sykri í dósamat eins og bökuðum baunum, ávöxtum, rauðrófum. Veljið því frekar ferskt grænmeti eða frosið.  Ef þið kaupið dósamat rennið yfir innihaldslýsinguna ef því oft segir “sugar” eða annað falið nafn sykurs í upptalningunni.

DSC_3000 small

Múslí

Tilbúið múslí og morgunkorn er oft jafn sykurríkt og sælgæti! Lengi vel keypti ég mér cheerios og weetabix enda taldi ég það vera góðan og hollan kost, en komst síðan að því að það væri fullt af sykri.
Mér finnst best að búa til múslíið sjálf og það hægt einfaldlega með því að hræra saman hafra, hnetum, fræjum og rúsínum eða öru sem þú óskar þér og blanda saman í krukku eða box! Einföld lausn fyrir morgunmúslíið.

Viltu fleiri ráð til að sleppa sykri? (sem allir í fjölskyldunni endast í)

Ef svo er komdu yfir HÉR og skráðu þig í ókeypis kennslusímtalið  “3 einföld skref sem halda sykurlöngun burt, brenna fitu náttúrulega og tvöfalda orkuna! “

Færðu sent sykurpróf sem sýnir þér besta úrræði og hversu lengi þú ættir að sleppa sykri, uppskrift af drykknum mínum sem er skotheldur gegn sykurlöngun og fleiri ráð sem ég kann að hafa eftir 8 ár að vera laus við sykurlöngun.
Með skráningu að ofan segi ég þér einnig betur frá því hvernig þú getur nælt þér í vinsælasta námskeið mitt þessa dagana “frískari og orkumeiri á 30 dögum” sem er a-ö áæltun til þess að enda sykurstríðið, fyllast orku og losna við aukakílóin á náttúrulegan og varanlegan hátt!

…en þar gef ég einfalt matarskipulag sniðið að annríki og fjölskyldufólki og hef hugsað fyrir öllu svo heilbrigt líf taki ekki meiri tíma af þér. (Og ef þú ert forvitin um hvar þú finnur öll 8 nöfn sykurs þá gef ég þann leiðarvísi á námskeiðinu. Hann inniheldur meira að segja myndir af matvælum sem eru í lagi og þeim sem gott er að vera á varðbergi með)Skráðu þig hér til að læra meira.

Ef þér líkaði greinin, væri ég afar þakklát ef þú deilir henni yfir á samfélgasmiðla

Heilsa og hamingja,
jmsignature