Fara í efni

Hvað skapar menntun og uppeldi - hugleiðing Guðna í dag

Hvað skapar menntun og uppeldi - hugleiðing Guðna í dag

UMGJÖRÐ ER ÁST – AGI ER SANNLEIKUR

Hillingin sem við búum í er sú umgjörð sem uppeldi og menntun hefur skapað. En sú umgjörð er ekki beinlínis frá okkur komin. Hún er bæði tilviljanakennd og fengin að láni, þótt við berum fulla ábyrgð á áhrifum hennar og afleiðingum.

Sú umgjörð sem þú velur að móta þér verður hins vegar vitnisburður um tilvist þína; spegill sem opinberar þig. Þegar þú býrð þér til umgjörð þá veistu nákvæmlega hvenær þú ert að svíkja þig eða standa við áætlunina.

Og þótt þú bregðist þér og umgjörðinni til að byrja með muntu smám saman ná tökum á þínum sannleika og velja velsæld frekar en vansæld, alveg eins og þegar þú lærir nýjan tölvuleik eða íþrótt þar sem maður á að fylgja ákveðinni braut.

Allar yfirlýsingarnar sem við gefum – um að við viljum vera öðruvísi – standast ekki fyrr en við verðum öðruvísi eða förum að gera ráðstafanir.

Góð vinkona mín sagði mér einu sinni frá geltandi hundum:

„Munurinn á manni með sjálfstraust og manni sem skortir það er einfaldur: Maður með sjálfstraust lítur á úrtölur hugans eins og geltandi hunda sem hann gengur óhikað framhjá. Sá sem hefur lítið sjálfstraust tekur mark á látunum í hundunum og stoppar jafnvel til að klappa þeim. Og þá er ekki að spyrja að leikslokum – við förum í hundana.“

Þegar upp er staðið stöndum við andspænis þessum geltandi hundum. Ef við breytum ekki um viðhorf þá breytist ekkert. Ef við bregðumst stöðugt við áreiti hugans – eins og það sé mikilvægt og marktækt – verðum við sífellt fyrir truflunum. Við erum ekki hugsanir okkar og við stjórnum þeim ekki, ekki frekar en við stjórnum myndinni sem varpast á tjaldið í kvikmyndahúsi. Hugsanaferli er vissulega öflugt verkfæri, en einungis þeir sem eru í vitund stjórna því með vali.

„Þetta getur ekki verið svona einfalt.“

Þetta er algengt viðkvæði hjá fólki. En er heimurinn svo flókinn? John Lennon sagði:

„Stríðinu lýkur – ef þú vilt það.“
Ef þú vilt það.
Ég myndi snúa þessu örlítið og segja: „Stríðinu lýkur – þegar þú vilt það.“
Þegar þú vilt það – og leyfir þér það – muntu taka breytingum og stíga inn í hamingjuna. Það er þá sem það gerist.
Þá en ekki fyrr.