Fara í efni

Herrafataverslun Birgis – frábær búð til að dressa upp herrann

Í Herrafataverslun Birgis færð þú allt á herrann þinn, frá tám og uppúr.
Herrafataverslun Birgis er með allt á herrana
Herrafataverslun Birgis er með allt á herrana

Í Herrafataverslun Birgis færð þú allt á herrann þinn, frá tám og uppúr.

Það er svo þæginleg lausn að þurfa bara að fara í eina verslun til að fá allt dressið á karlmanninn. Og við vitum að karlmönnum þykir ekkert gaman í búðarrápi svo fyrir þá, er þessi verslun alveg tilvalin. Ein búð, alklæðnaður og ekkert vesen.

Skyrturnar hjá þeim eru líka alveg geggjaðar og þjónustan er til fyrirmyndar.

Ég fór með minn herramann þangað um daginn því hann vantaði allt sem heitir spariföt fyrir jólin. Það var tekið afar vel á móti okkur og minn maður fann allt sem hann þurfti til að vera sem flottastur í jólaboðunum.

Að fá góða þjónustu í verslun skiptir öllu máli því þá er pottþétt að þangað leitar maður aftur.

Og að fá þessa frábæru þjónustu, ásamt alveg ofsalega vönduðum og fallegum fötum á þessu líka ótrúlega góða verði er ekki slæmt. Fyrir mína parta þá mæli ég með að karlmenn kíki í Herrafataverslun Birgis sem allra fyrst.

Þú getur kíkt á vöruúrvalið hjá þeim HÉR á Facebook síðunni þeirra.

Einnig skelli ég nokkrum myndum af því úrvali sem að verslunin býður uppá.

s

Glæsileg jakkaföt, skyrtur og bindi

d

Meiriháttar töff skyrtur

d

Töff og öðruvísi bindi 

d

Glæsilegur herrafatnaður

d

Og það vantar ekki úrvalið, úr nógu að velja

Herrafataverslun Birgis er til húsa að Fákafeni 11 í Reykjavík.