Fara í efni

Hægeldaðir lambaleggir í rauðvínssósu frá Eldhúsperlum

Uppskrift sem á alltaf við.
Hægeldaðir lambaleggir í rauðvínssósu frá Eldhúsperlum

Uppskriftin að þessu sinni er ef til vill ekki sú sumarlegasta. Mér finnst svona góðgæti þó alltaf eiga við.

Það er meira að segja nokkuð sniðugt að elda svona mat þegar manni langar helst að vera úti að leika og á meðan malla leggirnir án afskipta.

Ég mæli hiklaust með þessu rétti sem er einn af mínum allra uppáhalds.

 

 

 

 

 

Hægeldaðir lambaleggir í rauðvínssósu (fyrir 3-4)

  • 4 vænir lambaleggir (350-400 gr stykkið)
  • 2 laukar
  • 1 stór gulrót
  • 2-4 hvítlauksrif
  • 2 msk tómatpurré
  • 3 dl rauðvín
  • 6 dl vatn
  • 2 msk nautakraftur (Ég nota fljótandi Oscar kraft)
  • 1 msk fersk rósmarín, gróft saxað (eða 1 tsk þurrkað)
  • 3 þurrkuð lárviðarlauf
  • Smjör, sjávarsalt og svartur pipar

Aðferð:

Hitið ofn í 160 gráður. Kryddið kjötið vel með salti og pipar. Takið stóran pott, sem má fara í ofn og hitið á meðalháum hita á eldavél. Bræðið 1 msk af smjöri í pottinum, brúnið kjötið vel á öllum hliðum og takið það svo uppúr pottinu. Skerið grænmetið í frekar grófa teninga. Bræðið 1 msk í viðbót af smjöri í pottinum og steikið grænmetið þar til það mýkist aðeins. Setjið tómatpurré út í og steikið áfram. Hellið rauðvíninu yfir og skrapið vel botninn á pottinum. Leyfið að sjóða í 1 mínútu.

Hellið vatninu og kraftinum saman við. Setjið kjötið út í pottinn og setjið lok ofan á þannig að það sé örlítil rifa til að sleppa gufunni út. Hleypið suðunni upp og setjið svo inn í ofn í 90 mínútur. Takið þá lokið af pottinum, hækkið hitann í 200 gráður og leyfið að bakast áfram í 20 mínútur. Takið úr ofninum. Veiðið kjötbitana upp úr og geymið undir álpappír. Setjið pottinn á eldavélina, kveikið undir á háum hita og sjóðið sósuna niður þangað til að sósan er um það bil helmingi minni en var í upphafi eldunar.

Ef ykkur finnst sósan of þunn má þykkja hana með smá sósujafnara eða 2 tsk af hveiti stöppuðu saman við 1 msk af mjúku smjöri, pískað saman við sósuna á meðan hún sýður. Berið lambaleggina fram með góðri kartöflumús.

Þessa uppskrift og skemmtilega ferðasögu ásamt myndum Eldhúsperlunnar má finna HÉR