Fara í efni

Fyllt tacoflétta með nautahakki og salsasósu - Eldhúsperlur

Ég hvet ykkur til að skoða upprunalegu uppskriftina í hlekknum hér fyrir neðan, þá sjáið þið hvernig á að flétta deigið saman.
Skemmtilegur réttur fyrir börnin
Skemmtilegur réttur fyrir börnin

Jæja. Ég er voða spennt að setja þessa uppskrift inn og veit að það eru nokkrir að bíða eftir henni. Yngsti fjölskyldumeðlimurinn á heimilinu hefur búið við almennt tannleysi, lausar tennur og auman góm og þá dramatík sem því fylgir undanfarna mánuði. Enda eðlilegur fylgifiskur þess að vera sex ára. Hér hefur því verið mikið um rétti með nautahakki, fisk, grænmetisrétti, pasta og almennt mat sem er tyggingarvænn fyrir litla manninn. Nautahakk er reyndar sérstaklega vinsælt hjá honum og hafa ýmsar útgáfur af því fengið að líta dagsins ljós. Í gær var ég semsagt með þennan rétt. Hann gjörsamlega sló í gegn og þegar þetta er skrifað er sá stutti búinn að borða réttinn þrisvar. Semsagt algjör hittari hjá sex ára strák en hann var það líka hjá fullorðna fólkinu. Þetta er frábær kvöldmatur en ég sé þetta einnig fyrir mér í saumaklúbbum, afmælum og þess háttar í stað hinna gamalgrónu (en þó ágætu) brauðrétta. Það er voða gott að bera réttinn fram með fersku heimalöguðu guacamole og góðu grænu salati (ég myndi ekki dæma ykkur þó þið hefðuð líka nachos flögur með..). Ég lofa að réttinn er einfaldara að gera en það lítur út fyrir. Þetta snýst aðallega um samsetningu hráefna og svo er um að gera að stytta sér leið með því að nota tilbúið pizzadeig. Þá tekur þetta enga stund! Ég hvet ykkur til að skoða upprunalegu uppskriftina í hlekknum hér fyrir neðan, þá sjáið þið hvernig á að flétta deigið saman. 

Fyllt tacoflétta með nautahakki og salsasósu (lítillega breytt uppskrift frá: 365 Days of Baking and More)

  • 1 rúlla tilbúið pizzadeig (t.d. Wewalka, líka hægt að búa til frá grunni)
  • 6-700 gr hreint ungnautahakk
  • 1 rauðlaukur, smátt skorinn
  • 3 msk tilbúið tacokrydd úr poka
  • 1 lítil krukka salsasósa (ca. 230gr)
  • 1 límóna
  • 2-3 tómatar, skornir smátt
  • 200 gr rifinn ostur (1 poki)
  • 2 msk ólífuolía
  • Ofan á:
  • 4 vorlaukar, smátt saxaðir
  • Nokkrir kirsuberjatómatar, skornir smátt
  • Sýrður rjómi

Aðferð: Fletjið deigið út þannig að það þekji eina bökunarplötu. Leggið á plötuna og hafið bökunarpappír undir. Skerið 2-3 cm rákir langsöm niður eftir deiginu en skiljið ca. 10 cm rönd eftir í miðjunni (sjá skýringarmyndir í hlekknum við hausinn á uppskriftinni). Steikið laukinn þar til glær og bætið hakkinu út á pönnuna. Brúnið vel. Bætið tacokryddinu saman við ásamt salsasósunni og safanum úr límónunni blandið vel saman og smakkið til með salti og pipar. Hellið hakkinu á miðjuna á pizzadeiginu. Stráið tómötunum þar yfir og rúmlega helmingnum af rifna ostinum. Leggið nú deigstrimlana yfir hakkblönduna eins og þið væruð að flétta (sjá aftur skýringarmynd). Penslið ólífuolíu yfir fléttuna og stráið restinni af rifna ostinum yfir. Bakið við 180 gráður í 20 mínútur eða þar til deigið er vel bakað og osturinn ofan á gullinbrúnn. Dreifið dálitlum sýrðum rjóma yfir og stráið svo smátt söxuðum tómötum og vorlauk ofan á. (Rétturinn er passlegur sem aðalréttur fyrir 5 fullorðna).

Birt í samstarfi við