Fara í efni

Eldra fólk hrætt við snjallsíma?

Er eldra fólk hrætt við snjallsíma, er spurning sem stundum heyrist. Guðmundur Jóhannsson sem starfar sem markaðssérfræðingur hjá Símanum vill ekki segja að eldra fólk sé hrætt við slíka síma, en flestir séu smeykir við nýja tækni sem þeir kunni ekki á. „Þá gildir“ segir hann, „að hafa aðgang að upplýsingum og að einhverjum sem er hægt að leita til. Sama hvort það er ættingi, fjölskylduvinur eða símafyrirtæki“.
Eldra fólk hrætt við snjallsíma?

Er eldra fólk hrætt við snjallsíma, er spurning sem stundum heyrist.

Guðmundur Jóhannsson sem starfar sem markaðssérfræðingur hjá Símanum vill ekki segja að eldra fólk sé hrætt við slíka síma, en flestir séu smeykir við nýja tækni sem þeir kunni ekki á. „Þá gildir“ segir hann, „að hafa aðgang að upplýsingum og að einhverjum sem er hægt að leita til. Sama hvort það er ættingi, fjölskylduvinur eða símafyrirtæki“.

Óteljandi símar

Guðmundur segir að það sé ákveðin breyting að skipta úr gamaldags farsíma, yfir í snjallsíma. Þar komi menn inní frumskóg, því tækin séu mörg og margvísleg. Hann segir að það sé aðalmálið að gera sér grein fyrir hvaða þörf maður hafi í þessum efnum og hvað maður vilji að síminn geri. Hann sagðist nýbúinn að fara í gegnum þetta með foreldrum sínum sem er orðin 67 ára.

Mamma með Nokia síma

Pabbi valdi síma með stærri skjá“, segir hann. „Hann er með stóra fingur og sér ekki nógu vel. Hann vildi líka síma sem virkar á móti heyrnartækinu sem hann er með. Þannig getur hann heyrt í símanum í heyrnartækinu sem er mikil framför fyrir hann. Mamma er ekki sérstaklega klár í tækninni og hún notar Nokia snjallsíma. Stýrikerfið í honum er svipað og það sem hún er vön úr tölvunni heima og í vinnunni, þannig að henni hefur gengið vel að læra á hann. Hún notar símann til að sjá tölvupóst og til að hringja og senda sms. Hún er líka á Facebook og tekur myndir á símann og setur þangað. Þetta gengur bara vel hjá henni“.

Til hvers ætlar fólk að nota símann?

Guðmundur mælir með því að þeir sem eru ekki mjög tæknivanir, skoði sérstaklega Nokía snjallsíma vegna þess að margir kannist við kerfið í honum. „En þetta fer auðvitað eftir því hvað hver og einn vill. Til hvers ætla menn að nota símann? Sumir vilja fylgjast með fréttum eða komast í heimabankann. Aðrir vilja taka góðar myndir og þetta þarf að skoða vel“.

 

Til að lesa þessa grein til enda, smelltu þá HÉR

Grein af vef lifdununa.is