Fara í efni

Bryndís léttist um 13kg og fann sjálfstraustið

Bryndís léttist um 13kg og fann sjálfstraustið

Mér finnst fátt skemmtilegra en að heyra árangurssögurnar frá fyrri þáttakendum Nýtt líf og Ný þú lífsstílsþjálfunar!

Það er í algjöru uppáhaldi hjá Lifðu til fulls - að sjá líf fólks breytast til hins betra!

Bryndís Steinunn skráði sig í Nýtt líf og Ný þú þjálfun haustið 2017 og hefur verið ótrúlega gaman að fylgjast með henni í gegnum ferlið. Hún deilir hér með okkur sögu sinni og upplifun af þjálfun!

Þjálfunin er aðeins haldin árlega og styttist í að við hefjum þjálfun haustið 2018 og lýkur skráningu næstkomandi miðvikudag 19.ágúst.  Fyrir áhguasama má sækja ókeypis leiðarvísir og uppskriftir með helstu fæðuna fyrir aukna orku og náttúrulega brennslu hér, en leiðarvísirinn er sýnishorn úr þjálfuninni.

„Mér líður stórkostlega og mörgum árum yngri!” segir Bryndís.

DSCF2045smaller
Bryndís í dag

Leiðin að árangrinum

„Ég var orðin virkilega hrædd um líf mitt, langaði að breyta en hafði í raun prufað allt og ekkert virkaði. Ég er með sykursýki og í hvert sinn sem ég fór til læknis mældist langtímasykurinn í kringum 12-13 og fèkk ég að vita að ég yrði að ná honum niður í 7.5. Í raun var ég að fremja hægt sjálfsmorð.” segir Bryndís og bætir við að langtímasykurinn mælist nú í 6.2

Bryndís þjáðist af verkjum sem höfðu alvarlega fylgifiska, en hún tók gríðarlegt magn af verkjatöflum til að halda þeim niðri, sem er alls ekki gott til lengri tíma.

„Verkir hafa minnkað töluvert. Ég bruddi áður 4-500 töflur af parkódíni á ári en á síðustu 9 mánuðum hef ég tekið inn um 20-30 töflur.” Vert er þó að taka fram að öll lyfjaminnkun hefur verið gerð í samráði við læknaráð hjá Bryndísi.

Eitt af því skemmtilegasta við þjálfunina er andinn sem myndast og vináttan á milli þátttakenda sem vinna allar að sínum markmiðum.

„Það var dásamlegt að vera með stelpunum í hópþjálfuninni. Allir deila sínum árangri og uppskriftum og ef einhver fór út af sporinu fóru allir í það að peppa upp of koma manni aftur á fætur. Stuðningur frá öðrum var alveg ómetanlegur.”

 

26793451_10156017963957579_378410134_n
Bryndís fyrir nokkrum árum síðan

Ávinningurinn fór fram úr væntingum

„Í byrjun skipti það mig öllu máli fyrir mér að lèttast en sá ávinningur sem èg hef hlotið heilsufarslega er gríðalegur. Minni verkir og þyngdartap ásamt því að læra á líkamann og hvernig hann bregst við fæðu sem èg borða.”

„Ég hef meira sjálfstraust og sjálfsvirðingu. Hef líka töluvert meiri trú á sjálfri mèr. Ég er farin að hreyfa mig daglega, fer í göngutúra og ræktina og èg setti mèr markmið að fara uppá Esjuna í júní 2017 og èg stóð við það. Annað sem èg gerði er að èg skráði mig í förðunarnám, eitthvað sem mig hefur langað til að gera í 26 ár og útskrifaðist èg sem förðunarfræðingur í nóvember 2017. Ég veit að ég get allt sem ég ætla mèr.”

„Ég hef lèst um 13 kg og haldið því sem sýnir að þetta er langtímalausn,” bætir Bryndís við.

„Annað sem èg gerði er að èg skráði mig í förðunarnám, eitthvað sem mig hefur langað til að gera í 26 ár. Ég veit að ég get allt sem ég ætla mèr.”

Bryndís segist vera á þeirri skoðun að það sé fátt dýrmætara en heilsan (og ég er svo sannarlega sammála því!)

„Þetta er ein besta fjárfesting sem èg hef gert um ævina. Maður á bara einn líkama og hann er sko alveg þess virði að eyða í. Þessi þjálfun bjargaði lífi míni og það eru engar ýkjur.”
 

„Annað sem èg gerði er að èg skráði mig í förðunarnám, eitthvað sem mig hefur langað til að gera í 26 ár. Ég veit að ég get allt sem ég ætla mèr.”
 

DSCF2051smaller

 

Varanlegur lífsstíll

- sem þú endist í, er markmiðið með Nýtt líf og Ný þú þjálfun. Þú ættir ekki að þurfa að skrá þig í neinn annan kúr þar eftir enda leggjum við uppúr því að finna hvað hentar ÞÉR og þínum líkama og hvað gefur þér árangur sem endist!

Þetta gæti því verið þitt tækifæri til að enda orkuleysið og þyngdarströgglið og segja skilið við frestun og afsakanir!

Ef þú hefur áhuga á að vita meira um Nýtt líf og Ný þú þjálfun þá erum við tímabundið að bjóða uppá ÓKEYPIS leiðarvísi með helstu fæðunni fyrir meiri orku, minni sykurlöngun og minni verki. Leiðarvísirinn er einnig sýnishorn af þjálfuninni Nýtt líf og Ný þú. 

LEIÐARVÍSIR

Smelltu hér til að fá ókeypis leiðarvísinn!

Yfir síðustu ár hef ég skuldbundið mig því að gerast sérfræðingur á sviði heilsu og lífsstíls og er það mín löngun er að einfalda og stytta þér leiðina að bættri heilsu og hjálpa þér að komast loksins að því hvað virkilega virkar fyrir þig!

Ég vonast til að sjá þig í þjálfun í haust og hjálpa þér að skapa lífsstíl sem gefur þér allsherjarvellíðan, orku alla daga, léttari líkama (án erfiðis) og svo miklu miklu meira!

Smelltu hér fyrir Nýtt líf og Nýja þig og lífsstíl sem þú elskar!

Heilsa og hamingja,
jmsignature