Fara í efni

Bollaköku hafraklattar.

Þessir eru góðir með kaffinu . Minn litli var líka rosa hrifin og fannst þetta ljúfengt :)
Bollaköku hafraklattar.
Bollaköku hafraklattar.
Kaffitíminn súper góður 

Heimabakaðar "Bollaköku hafraklattar"

Uppskrift.

3 bollar haframjöl
1 1/2 bolli Spelt
1/2 bolli kokoshveiti
1/2 vínsteinslyftiduft
2 tsk. gott salt
1/4 bolli hörfræ
3/4 pekan og brasilíu hnetur
1/3 bolli kókosolía
1/3 bolli ísl. smjör
3/4 Agave síróp
2 msk. hrásykur
2 stór egg

1. Hitið ofninn upp í 180gráður og smyrjið muffins form með kokosolíu ( ég er með silikon form svo ekkert að smyrja)

2. Blandið , haframjölinu, speltinu, lyftiduftinu, saltinu, hörfæjanum og hnetunum nota stóra skál.

3. Hita allt hitt saman í litlum potti hræra vel og ekki hafa of heitt ...bara rétt bráðna saman.

4. Hellið svo blöndunni úr pottinum yfir í skálina og hræra 
saman.
Bæta eggjunum við og hræra vel saman.

5. Ég er með lítil muffins form silikon. Og þetta dugði í 16 
kökur. 
Bakaði í 25min. En fer eftir ofni og stærðinni á formunum .

6. Borðist ekki alveg sjóðheitt...leifa að kólna smá  

Njótið :)