Fara í efni

Bleikja með tómata og ricotta pestó

Bleikjupanna með pestói og spínati.
Bleikja með tómata og ricotta pestó

Það er æðislegt að skella í fiskrétt á mánudegi. Þessi bleikjuréttur er einfaldur og ofsalega góður.

Bleikjupanna með pestói og spínati.

 

 

 

 

Hráefni:

800 g bleikja

2 msk Filippo Berio ólífuolía

4 hvítlauksrif, maukuð

1 chilipipar, saxaður

1 box kirsuberjatómatar, skornir í tvennt

100 g spínat

190 g Filippo Berio tómata og ricotta pestó

1 límóna

Salt og pipar

Leiðbeiningar:

1. Hitið olíuna á pönnu og steikið bleikjuna í smáum stykkjum á annarri hliðinni.

2. Setjið chilipipar og hvítlauk á bleikjuna og kryddið með salti og pipar.

3. Steikið í ca 2 mínútur og takið bleikjuna af pönnunni.

4. Steikið þá tómatana og spínatið á pönnunni.

5. Bætið pestóinu út á og hrærið vel í.

6. Raðið að lokum bleikjunni á pönnuna á ósteiktu hliðina og látið malla í ca. 5 mínútur.

7. Kreistið límónusafa yfir og sáldrið yfir smávegis af chilipipar eftir smekk.

8. Gott að bera fram með auka pestói og kartöflum eða grjónum.

Einnig gott að nota lax eða annan fisk.